Kirkjan
Íslenska Kristskirkjan er lútherskur fríkirkjusöfnuður, viðurkennt skráð trúfélag og veitir meðlimum sínum alla almenna kirkjulega þjónustu svo sem skírn, fermingu, hjónavígslur og útfarir. Söfnuðurinn á bakgrunn sinn í samtökunum Ungt fólk með hlutverk, sem störfuðu í 21 ár sem leikmnannahreyfing innan þjóðkirkjunnar. Íslenska Kristskirkjan var stofnuð haustið 1997.

VISBÓ
VISBÓ
VISBÓ er árlegt unglingamót haldið í ágúst hvert ár á gistiheimili kirkjunnar á Eyjólfsstöðum. Mótið er fyrir alla unglinga 14 ára og eldri. Tilgangurinn er að eiga samfélag við Guð, hafa gaman og eignast nýja vini. Mótið er fullt af skemmtilegum uppákomum eins og t.d. að hoppa í Eyvindará, capture the flag, fótbolta, vatnsslag og margt fleira skemmtilegt. VISBÓ 2020 verður haldið í ágúst svo fylgstu með og taktu dagana frá og komdu með okkur í ævintýri.
Viltu vita meira? Hafðu samband eða horfðu á myndböndin frá síðustu mótum.

Ágúst

Aldur: 14+