Kirkjan
Íslenska Kristskirkjan er lútherskur fríkirkjusöfnuður, viðurkennt skráð trúfélag og veitir meðlimum sínum alla almenna kirkjulega þjónustu svo sem skírn, fermingu, hjónavígslur og útfarir. Söfnuðurinn á bakgrunn sinn í samtökunum Ungt fólk með hlutverk, sem störfuðu í 21 ár sem leikmnannahreyfing innan þjóðkirkjunnar. Íslenska Kristskirkjan var stofnuð haustið 1997.

BARNASTARFIÐ
Barnakirkjan er á sunnudögum kl.13:00. Þar læra börnin söngva, fræðast um kristna trú og gott siðferði og leika sér saman. Börnunum er yfirleitt skipt í aldurshópa og er dagskrá hvers hóps í samræmi við þroska og skilning, en vegna aðstæðna og fjölda eru þau höfð saman þetta misseri.
Barnastarfið stendur frá september og fram undir lok maí. Dagskráin er fjölbreytt og stundirnar eru bæði skemmtilegar og fræðandi. Umsjá með barnastarfinu er í höndum fólks sem hefur mikla reynslu af kristilegu barnastarfi og kröftugum hópi úr unglingastarfi kirkjunnar. Ábyrgðarmenn eru Sigríður Schram, grunnskólakennari, Guðbjörg Hrönn Björnsdóttir grunnskólakennari og Ásdís Margrét Rafnsdóttir, hjúkrunarfræðingur.

Fossaleyni 14, 112 Grafarvogur

Sunnudaga kl.13:00

Yngri: 2 - 8 ára