Íslenska Kristskirkjan

Þú ert hérna: Forsíða Um kirkjuna Spurningar og svör Hvernig skrái ég mig í söfnuðinn?
Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa

Hvernig skrái ég mig í söfnuðinn?

Þú berð ósk þína upp við prest safnaðarins, sem ræðir við þig um ákvörðun þína. Hann útskýrir fyrir þér hvað þarf til að ganga í söfnuðinn og ef þú fellir þig við það, fyllir þú út þar til gert skráningareyðublað (sem hefur yfirskriftina “Skráning í trúfélag”) sem gefið er út af Hagstofunni. Þetta eyðublað færð þú hjá okkur. Þar skal taka fram úr hvaða trúfélagi (söfnuði) þú hverfur og í hvað þú gengur (Íslensku Kristskirkjuna í þessu tilfelli). Við leiðbeinum þér við útfyllingu eyðublaðsins og skrifstofa safnaðarins sér síðan um að koma því til Hagstofunnar.
 
Heimasíða UNIK