Íslenska Kristskirkjan

Þú ert hérna: Forsíða Um kirkjuna Prestur
Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa

Prestshjónin Friðrik og Vilborg Schram

Friðrik og Vilborg Schram Friðrik Schram er prestur safnaðarins og annast hann allar kirkjulegar athafnir svo sem skírn, heilaga kvöldmáltíð, fermingar, hjónavígslur og útfarir. Friðrik er fæddur í Reykjavík 1946. Hann lauk verslunarprófi frá Verslunarskóla Íslands 1966, stundaði Biblíu- og predikunarnám við Biblíuskóla norska lútherska heimatrúboðsins í Osló veturinn 1967-68 og lauk guðfræðiprófi frá Háskóla Íslands 1985. Hann var einn af stofnundum samtakanna Ungt fólk með hlutverk og formaður þeirra frá 1976 til1997 er þau voru lögð niður. Hann var líka einn af stofnendum Íslensku Kristskirkjunnar árið 1997 og hefur verið prestur hennar frá þeim tíma.

Vilborg Schram, eiginkona Friðriks, sér um daglegan rekstur skrifstofu safnaðarins sem er opin þriðjudaga til föstudaga frá 13 - 17. Vilborg er fædd í Reykjavík og fóstra að mennt. Saman eiga Vilborg og Friðrik þrjú uppkomin börn og 6 barnabörn.

 
Heimasíða UNIK