Íslenska Kristskirkjan er lútherskur fríkirkjusöfnuður, viðurkennt skráð trúfélag og veitir meðlimum sínum alla almenna kirkjulega þjónustu svo sem skírn, fermingu, hjónavígslur og útfarir. Söfnuðurinn á bakgrunn sinn í samtökunum Ungt fólk með hlutverk, sem störfuðu í 21 ár sem leikmnannahreyfing innan þjóðkirkjunnar. Íslenska Kristskirkjan var stofnuð haustið 1997.
Kenningargrundvöllur kirkjunnar er hinn sami og annarra lútherskra safnaða. Við leggjum áherslu á endurlausnarverk Jesú Krists og þá fyrirgefningu sem okkur hlotnast fyrir trúna á hann og að allir menn verði að eignast lifandi trú. Við leggjum áherslu á mikilvægi Biblíunnar sem
heilagrar ritningar og að í henni birti (opinberi) Guð okkur syndugum mönnum vilja sinn og sýni okkur leiðina til hjálpræðis og helgunar í daglegu lífi. Við trúum því að Biblían sem innblásin af Heilögum anda og þannig einsök sem Orð Guðs og æðsta viðmiðun í öllu er varðar trú og breytni. Við leggjum áherslu á verk Heilags anda og mikilvægi náðargjafa hans eins og þeim er lýst í Nýja testamentinu.
Um kirkjuna

