Reykjavík
Íslenska Kristskirkjan er til húsa að Fossaleyni 14 í Grafarvogi. Þar er kirkjusalurinn og skrifstofa safnaðarins, en hún er opin frá þriðjudegi til föstudags frá klukkan 13:00 til 17:00Íslenska Kristskirkjan - Kort
Fossaleynir 14
112 Reykjavík
Netfang: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
sími 567 8800
Eyjólfsstaðir á Héraði
Í aðalbyggingunni Eyjólfsstöðum er góð aðstaða til að halda mót og ráðstefnur á vegum safnaðarins. Á hverju sumri er yfirleitt haldin fjölskylduvika í júní, almennt mót um verslunarmannahelgina og unglingamót (breytilegur tími). Auk þess er af og til boðið upp á námskeið eða annað sem eflt getur kristilegt safnaðarstarf. Á Eyjólfsstöðum eru samkomur flesta sunnudaga kl. 14:00 í kirkjusal skólahússins.
Eyjólfsstaðir er skógræktarjörð, sem tekur þátt í skógræktarverkefninu Héraðsskógum. Eyjólfsstaðir hafa verið með í því verkefni frá árinu 1991, og er hinn nýji Eyjólfsstaðaskógur nú farinn að setja mikinn svip á landið
Eyjólfsstaðir eru á Fljótsdalshéraði, aðeins 9 km suður af Egilsstöðum, og sjást húsin mjög vel frá þjóðvegi 1, hvít hús með bláum þökum.
Gistiþjónusta
Á Eyjólfsstöðum er rekin gistiþjónusta samhliða því að vera starfsmiðstöð Íslensku Kristskirkjunnar á Austurlandi.
Eyjólfsstöðum
701 Egilsstaðir
Netfang:
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Heimasíða: www.eyjolfsstadir.is
sími 471 2171

