Kostar eitthvað að vera í Íslensku Kristskirkjunni?
Nei, það kostar ekkert. Hins vegar innheimta skattyfirvöld með opinberum gjöldum af hverjum einstaklingi 16 ára og eldri, sérstakt lögboðið kirkjugjald (kallað “sóknargjald” í þjóðkirkjunni) sem er u.þ.b. 10,000 kr. á ári. Slíkt gjald er innheimt af öllum skattgreiðendum eins og menn vita og skilað hinum ýmsu söfnuðunum í landinu og þá í réttu hlutfalli við meðlimafjölda. Skattstjóri sér um að koma gjaldinu til skila til safnaðanna, og þar með talið til okkar. Þótt þetta gjald sé ekki hátt, hjálpar það til við fjárhagslegan rekstur safnaðarins. Mikilvægasti tekjustofninn er þó frjáls framlög safnaðarmeðlimanna sjálfra. Allir sem skráðir eru í söfnuðinn eru hvattir til að styðja starf hans fjárhagslega eftir getu hvers og eins, enda eru frjáls framlög sjálfra safnaðarmeðlimanna mikilvægasti tekjustofninn. Enginn er þó skyldugur til að gefa og fjárframlög eru ekki skilyrði fyrir þátttöku. Íslenska Kristskirkjan nýtur engra styrkja frá ríki eða borg.