Íslenska Kristskirkjan

Þú ert hérna: Forsíða Um kirkjuna Spurningar og svör Er eitthvað sérstakt sem er öðruvísi við aðild að Íslensku Kristskirkjunni en öðrum söfnuðum?
Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa

Er eitthvað sérstakt sem er öðruvísi við aðild að Íslensku Kristskirkjunni en öðrum söfnuðum?

Já, aðild að söfnuðinum getur verið tvenns konar:

  • A. Hægt er að skrá sig til fullrar þátttöku og vera þannig virkur meðlimur. Þetta geta þeir sem eiga lifandi trú á Jesú Krist, líta á Biblíuna sem æðsta kennivald hvað varðar trú og breytni og eru sammála kenningargrundvelli safnaðarins (sjá lög hans). Virkir meðlimir hafa tillögu og atkvæðisrétt á aðalfundi safnaðarins.

  • B. Hinn valkosturinn er að vera aðeins skráður meðlimur. Sá kostur er einkum hugsaður fyrir þá sem vilja tilheyra kristnum söfnuði, en eru ekki þegar í stað tilbúnir til virkrar þátttöku og fullrar ábyrgðar. Skráðir meðlimir njóta allrar þjónustu sem kirkjan veitir, rétt eins og virkir meðlimir, en hafa ekki atkvæðisrétt á aðalfundi.