Forysta Íslensku Kristskirkjunnar er í höndum svokallað safnaðarráðs. Safnaðarráðið skipa 5 til 7 aðilar. Prestur safnaðarins situr í safnaðarráðinu, er formaður þess og stýrir fundum. Kjörtímabil meðlima safnaðarráðsins, annarra en prests, er tvö ár. Heimilt er að endurnýja kosningu safnaðarráðsmeðlima allt að fjórum sinnum í röð, tvö ár í senn. Eftir það þurfa að líða tvör ár þar til viðkomandi á möguleika á að verða kjörinn í safnaðarráðið á ný.
Starfsárið 2009 til 2010 er safnaðarráðið skipað eftirtöldum aðilum: Edda Langworth, Edda Swan, Friðrik Schram (prestur), Marinó Gíslason og Vilborg Schram.

