Íslenska Kristskirkjan

Þú ert hérna: Forsíða Tenglar Erlent
Erlent
Tenglar sem allir tengjast erlendu kirkjustarfi
Sýnir # 
# Vefhlekkur Innlit
1   Link   Hour of Power
Vefsetur Robert Schullers, í Cristal Cathedral kirkjunni í Bandaríkjunum. Mikið af góðu efni fyrir alla sem áhuga hafa á að ná framförum í lífi sínu.
99
2   Link   Focus on the family
Þetta er heimasíða "Focus on the family" stórrar fjölskylduráðgjafar-stofnunar sem Dr. James Dobson setti á fót.

Á heimasíðu Focus on the Family er hafsjór af alls konar upplýsingum og hægt er að panta tímarit þeirra, bækur og fleira áhugavert efni. Sjón er sögu ríkari!

James Dobson er mjög virtur fjölskylduráðgjafi í Bandaríkjunum. Hann á að baki 14 ára starfsferil við University of Southern California School of Medicine og hefur auk þess starfað um 17 ára skeið við Children's Hospital of Los Angeles. Hann hefur lærdómtitilinn Ph.D. í Child development frá University of Southern California. Vegna margþættra afskipta af fjölskyldumálum á vegum yfirvalda, var hann kjörinn í sérstaka ráðgjafanefnd um fjölskyldumál sem starfar í nafni Hvíta hússins og var heiðraður af Jimmy Carter bandaríkjaforseta. Hann var útnefndur af Ronald Reagan forseta í þjóðar-ráðgjafanefnd um löggjöf í unglingamálum og til að finna leiðir til að draga úr afbrotum ungs fólks. Einnig hefur hann átt sæti í ýmsum öðrum opinberum nefndum um heilbrigðis og velferðamál. "Focus on the Family" sinnir margs konar fjölmiðlun og fræðslumálum og gefur út bækur og myndbönd og sendir út útvarpsþætti á 4200 útvarpsstöðvum um allan heim.
64
3   Link   Lutheran Renewal
Þegar náðargjafavakningin var að ryðja sér til rúms í Bandaríkjunum á 7. áratugnum hafði hún töluverð áhrif í lútherskum kirkjum þar í landi, ekki síst í tvíburaborgunum Minneapolis og St. Paul í Minnesotafylki. Í framhaldi af því var þar sett á fót stofnunin International Lutheran Renewal Center. ILRC stóð fyrir stórum árlegum ráðstefnum lútherskra um Heilagan anda og náðargjafirnar. Þær hafa haldið áfram allt fram á þennan dag og sækja þær margir. Íslenska Kristskirkjan er í góðu sambandi við leiðtoga Lutheran Renewal, t.d. framkvæmdastjórann Paul Anderson og Dan Siemens sem ferðast um á vegum hreyfingairnnar og heldur mót og talar/kennir á ráðstefnum um endurnýjun í söfnuðunum. Báðir hafa þeir heimsótt Íslensku Kristskirkjuna. Heimasíða Lutheran Renwal er áhugasöm og fróðleg. Skoðaðu hana!
86
4   Link   Worshiplanet
Heimasíða hljómsveitarinnar worshiplanet sem Mark og Carrie Tedder leiða, en þau hafa komið tvisvar til Íslands í boði Íslensku Kristskirkjunnar, síðast á þessu ári (2002) . Nýtískuleg og fróðleg heimasíða. Þar eru t.d. myndir frá heimsókn þeirra hingað til lands. Kynntu þér málið!
174
5   Link   Carm
Christian Apologetics & Research Ministry (CHARM) hafa skrifað mikið um önnur trúarbrögð og villukenningar innan kristinnar kirkju, svo eru þeir með mjög góðar leiðbeiningar um hvernig vitna eigi fyrir fólki sem hefur önnur trúarbrögð eða aðhyllist villukenningar.
136
6   Link   Worship together
Frábær vefur um allt mögulegt sem viðkemur lofgjörð sérstaklega en einnig mikið magn af áhugaverðu efni, greinum og fréttum frá lofgjörðarleiðtogum, predikurum og öðrum sem að Kristnu starfi koma víðsvegar um heim. Afar áhugaverður og veglegur vefur sem vert er að kynna sér vel.
89