Innan kirkjunnar í Reykjavík eru unnin ýmis störf, langflest í sjálfboðavinnu. Koma þar að ungir og eldri, karlar og konur. Öll eru þessi störf mjög miklvæg og án þeirra myndu hlutirnir ekki ganga sem skyldi.
Hér getur fólk áttað sig betur á þeirri fjölbreytni sem er í starfi safnaðarins.
Prestsþjónusta. Presturinn er launaður starfsmaður safnaðarins og annast alla almenna prestsþjónustu.
Safnaðarráð. Það sér um stefnumótun og tekur helstu ákvarðanir um starf og rekstur safnaðarins.
Skrifstofan. Stjórn skrifstofunnar er launað starf og í því felst einnig dagleg umsjá með kirkjuhúsinu. Á skrifstofunni er sinnt margvíslegum viðfangsefnum sem varða rekstur kirkjustarfsins og þjónustu við safnaðarmeðlimi. Skrifstofan er opin eftir hádegi frá þriðjudegi til föstudags. Þangað getur fólk snúið sér með fyrirspurnir, bænarefni, ráðgjöf eða hvað eina sem það telur að við getum aðstoðað það við.
Kaffiþjónusta. Um er að ræða að hella upp á könnuna fyrir þá sem koma á samkomurnar. Yfir vetrarmánuðina er þeim sem koma á morgunstundirnar boðið upp á brauð, álegg og kaffi/te/djús í hádeginu. Gott er þá að geta sest niður og borða saman enda allir orðnir svangir og í þörf fyrir hressingu. Verðinu er mjög stillt í hóf. Þessi þjónusta er mikils virði og rómuð af samkomugestum.
Tæknimál. Um er að ræða uppsetningu og viðhald hljóðnema, hátalara og annarra slíkra tækja, og síðan hljóðblöndun á samkomum. Undir þennan lið heyrir einnig stjórnun á skjávarpa en með honum er söngtextum og fleiru varpað upp á tjald í samkomusalnum. Ef tónlistin heyrðist illa og söngtextatana vantaði væri illt í efni, en fúsar hendur sjá til þess að þetta sé í lagi.
Þrif á kirkjunni. Ef þú kæmir að kirkjunni illa hirtri og óþrifalegri myndi það hafa neikvæð áhrif á þig. Þess vegna er þjónusta þeirra sem annast þrif í kirkjunni mjög mikilvæg. Þessi vinna er eins og flest önnur unnin af óeigingjörnum sjálfboðaliðum.
Samkomuþjónar. Hlutverk þeirra er að taka á móti fólki sem kemur á samkomur okkar, sjá um að kirkjusalurinn sé vistlegur, kveikja á altariskertum, taka við gjöfum til starfsins og ýmislegt fleira. Það er notalegt að fá hlýlegar móttökur þegar maður kemur í kirkju, ekki síst fyrir þá sem eru að koma í fyrsta skipti og eru ókunnugir.
Viðhald og innrétting hússins. Þetta er víðfemur málaflokkur. Ýmsilegt er enn óunnið hvað varðar smíði kirkjuhússins. Ennþá á eftir að byggja kaffisal sem viðbyggingu sunnan og austan við húsið og eins hefur væntanlegt anddyri ekki verið reist. Inni er sífellt verið að bæta og laga, bæði hvað varðar trésmíði og raflagnir. Margir koma að þessum verkefnum og njótum við kunnáttu og aðstoðar margra fagmanna í söfnuðinum.
Söng- og tónlistarþjónusta. Hún er viðamikil, bæði á barna-, unglinga- og fullorðinssamverunum. Það vantaði mikið ef ekki væri söngur og tónlist á samkomunum! Við metum þessa þjónustu mjög mikils.
Samkomustjórnun. Nokkrir aðilar skipta þessari þjónustu á milli sín -mikilvægt er að hafa góða stjórn á hlutunum !
Kennsla. Frætt er um hin ýmsu efni, oftast út frá Biblíunni, en einnig um annað t.d. samskipti fólks almennt og í hjónabandinu. Á þessum vetri (2009-10) stendur til að bjóða upp á námskeið um fleiri efni. Þetta er mikilvæg þjónusta og koma margir þar að. Á sunnudagsmorgunum er kennsla sérstaklega á dagskrá.
Predikun. Hún fer fram á samkomunum á sunnudagskvöldum og eins á unglingasamkomunum. Það er ekki aðeins presturinn sem predikar í Kristskirkjunni, margir taka þar til máls. Komdu og kynntu þér úrvalið!
Barnastarf. Þessi mikilvæga þjónusta fer aðallega fram á sunnudagsmorgnum, en þá fá börnin fræðslu, hver aldurshópur við sitt hæfi.
Unglingastarf. Samverur unga fólksins eru á föstudagskvöldum og annast þau sjálf þessar stundir undir forystu og leiðsögn þeirra sem eldri eru.
Námskeiðahald. Stundum er boðið upp á námskeið og fræðslustundir í miðri viku eða um helgar og koma ýmsir að því starfi. Alfanámskeið eru t.d. haldin á hverjum vetri.
Sjónvarpsþáttagerð. Hún fer fram nánast í hverri viku yfir vetrarmánuðina. Góður hópur fólks vinnur að þessum verkefnum. Þættirnir eru teknir upp í myndveri safnaðarins og afraksturinn sýndur á sjónvarpsstöðinni Omega og á heimasíðu kirkjunnar.
Fyrirbænaþjónusta. Þessi þjónusta fer fram í lok samkomanna á sunnudagskvöldum og einnig er beðið fyrir innsendum bænarefnum á sérstökum bænastundum einn virkan dag í viku.
Bókhald. Öllu sem varðar fjármál og bókhald þarf að halda vel til haga og þessi þjónusta því mikilvæg þótt fáir verði hennar varir frá degi til dags.
Gestamóttaka. Fólk kemur til kirkjunnar á ýmsum tímum (meðan opið er) og við tökum vel á móti öllum. Margir líta inn til að fá sér kaffisopa og spjalla við okkur föstu starfsmennina, aðrir koma til að finna næði, leita ráða eða e.t.v. eiga sína eigin bænastund. Á skrifstofutíma er alltaf heitt á könnunni og fólk velkomið að líta inn, einnig þótt það eigi ekkert sérstakt erindi annað en að bara koma í kirkjuna.
Heimasíðan. Á meðal okkar er hæft fólk sem kann heimasíðugerð og er það mikilvæg þjónusta til að ná til sem flestra og kynna starf safnaðarins og miðla margvíslegum upplýsingum.
Lóðin. Lóð kirkjunnar er grasivaxin að hluta. Yfir sumartímann er oft mikill vöxtur í grasinu og þá kemur sér vel að liðtækir menn hafa séð um að slá lóðina reglulega og halda henni snyrtilegri.
Heimahópar. Þeir eru nokkrir. Þeim er stjórnað af sjálfboðaliðum og þar hittist fólk í heimahúsum sér til uppbyggingar og til að efla vináttuna.
Eyjólfsstaðir. Á starfsmiðstöð Kristskirkjunnar á Eyjólfsstöðum á Fljótsdalshéraði eru unnin margvísleg störf. Þau snúa að hinni kristilegu þjónustu og samkomum sem þar eru haldnar auk annars sem lýtur að gistiþjónustunni og nytjaskógræktinni. Skoðið vef Eyjólfsstaða en slóðin er: www.eyjolfsstadir.is

