Íslenska Kristskirkjan, líkt og kirkja Krists um allan heim, lítur á það sem hlutverk sitt að breiða út fagnaðarerindið um Jesú Krist meðal allra þjóða. Kristur sjálfur fól fylgjendum sínum þetta hlutverk og víða í Biblíunni er hvatt til kristniboðs.Allir menn eru skapaðir til að eiga samfélag við Guð og án slíks samfélags verður ávallt tómarúm í hjarta mannsins. Því eiga allir rétt á að kynnast Guði og syni hans Jesú Kristi. Og til þess að einstaklingur geti tekið afstöðu til Krists þarf hann vitaskuld að hafa heyrt um frelsisverk hans og við lítum svo á að það sé m.a. okkar hlutverk að kynna honum það.
Sumarið 2008 fór 24 manna hópur úr kirkjunni í tveggja vikna ferð til Ceuta sem er spánski hluti Marokkó. Tilgangur ferðarinnar var að boða innflytjendum kristna trú í söng, drama, dansi og prédikun og að vinna að hjálparstarfi.
Á árunum 2003 – 2007 störfuðu hjónin Kristbjörg Gísladóttir og Ragnar Schram ásamt börnum sínum tveimur í Eþíópíu á vegum Sambands íslenskra kristniboðsfélaga. Þau störfuðu bæði sem kennarar við norskan grunnskóla í Addis Abeba og komu að kirkjustarfi og þróunar- og hjálparstörfum í suðvesturhluta landsins.Þá hafa fleiri meðlimir Íslensku Kristskirkjunnar komið að og stutt kristniboð erlendis með ýmsum hætti á undanförnum árum.

