|
"Faðir yðar veit, hvers þér þurfið, áður en þér biðjið hann." Matt 6:8
Ef þú vilt að við biðjum fyrir þér eða einhverju sérstöku sem liggur þér á hjarta, hvetjum við þig til að enda okkur línu og fylgja þannig fordæmi þeirra fjölmörgu sem hafa fengið að reyna mátt bænarinnar. Við biðjum fyrir öllum bænaefnum á sunnudags samkomum og svo eru sérstakar bænastundir í kirkjunni okkar á hverjum fimmtudegi kl 17:00. Hérna getur þú sent okkur fyrirbænar eða þakkarefni þitt, einfaldlega með því að fylla í reitina og ýta á "Senda" hnappinn. Þetta er rétta afstaðan til bænarinnar, því við vitum að Jesús getur læknað og við vitum að hann vill lækna. Spurningin er frekar sú, hvort við höfum trú fyrir því að hann muni gera það, og erum við opin fyrir því hvernig hann vill lækna. Leitum hans vilja í bæn okkar og hlustum eftir hans leiðsögn. |