Frá því í september og fram í maí eru tvær guðsþjónustur/ samkomur á sunnudögum. Sú fyrri kl. 11:00 en sú síðari kl 8 um kvöldið. Á morgunstundinni er fræðsla fyrir börn og fullorðna. Börnunum er þá skipt í aldurshópa og fá þau fræðslu við sitt hæfi á meðan fullorðnir fá sína fræðslu. Á kvöldsamkomunum er létt lofgjörðartónlist, fyrirbænir og lifandi predikun. Einu sinni í mánuði er heilög kvöldmáltíð, til skiptis að morgni eða að kvöldi.
Fyrirkomulag á guðsþjónustum okkar og samkomum er frjálslegra en fólk er yfirleitt vant í þjóðkirkjunni. Prestur okkar klæðist ekki hempu. En á hátíðum og við sérstakar athafnir og tækifæri svo sem heilaga kvöldmáltíð, skírn, fermingar, hjónavígslur og útfarir klæðist hann ölbu (hvítri skikkju) og stólu. Tónlistin í krikjunni er nútímaleg og fólk hvatt til að njóta þess sem fram fer, lofa Guð í einlægni og eins og því er eðlilegt, t.d. með því að standa upp undir lofgjörðinni. Ræður eru blátt áfram og lausar við skúrðmælgi og miða að því að fólk skilji boðskapinn og geti hagnýtt sér hann í daglegu lífi.

