Íslenska Kristskirkjan

Þú ert hérna: Forsíða Starfið
Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa

Starfssemi Íslensku Kristskirkjunnar

Allir eru velkomnir á samkomur og guðþjónustur kirkjunnar!

Íslenska Kristskirkjan er lútherskur fríkirkjusöfnuður, viðurkennt skráð trúfélag og veitir meðlimum sínum alla almenna kirkjulega þjónustu svo sem skírn, fermingu, hjónakvígslur og útfarir. Söfnuðurinn á bakgrunn sinn í samtökunum Ungt fólk með hlutverk, sem störfuðu í 21 ár sem leikmnannahreyfing innan þjóðkirkjunnar. Íslenska Kristskirkjan var stofnuð haustið 1997.

Kenningargrundvöllur kirkjunnar er hinn sami og annarra lútherskra safnaða. Við leggjum áherslu á endurlausnarverk Jesú Krists og þá fyrirgefningu sem okkur hlotnast fyrir trúna á hann og að allir menn verði að eignast lifandi trú. Við leggjum áherslu á mikilvægi Biblíunnar sem heilagrar ritningar og að í henni birti (opinberi) Guð okkur syndugum mönnum vilja sinn og sýni okkur leiðina til hjálpræðis og helgunar í daglegu lífi. Við trúum því að Biblían sem innblásin af Heilögum anda og þannig einsök sem Orð Guðs og æðsta viðmiðun í öllu er varðar trú og breytni. Við leggjum áherslu á verk Heilags anda og mikilvægi náðargjafa hans eins og þeim er lýst í Nýja testamentinu.

Guðþjónustur og samkomur
Frá því í september og fram í maí eru tvær guðsþjónustur/ samkomur á sunnudögum. Sú fyrri kl. 11:00 en sú síðari kl 8 um kvöldið. Á morgunstundinni er fræðsla fyrir börn og fullorðna. Börnunum er þá skipt í aldurshópa og fá þau fræðslu við sitt hæfi á meðan fullorðnir fá sína fræðslu. Á kvöldsamkomunum er létt lofgjörðartónlist, fyrirbænir og lifandi predikun. Einu sinni í mánuði er heilög kvöldmáltíð, til skiptis að morgni eða að kvöldi.

Fyrirkomulag á guðsþjónustum okkar og samkomum er frjálslegra en fólk er yfirleitt vant í þjóðkirkjunni. Prestur okkar klæðist ekki hempu, en á hátíðum og við athafnir klæðist hann ölbu (hvítri skikkju) og stólu. Tónlistin í kirkjunni er nútímaleg og fólk hvatt til að njóta þess sem fram fer, lofa Guð í einlægni og eins og því er eðlilegt, t.d. með því að standa upp undir lofgjörðinni. Ræður eru blátt áfram og lausar við skúrðmælgi, að jafnaði ekki lengri en 30 mínútur og miða að því að fólk skilji boðskapinn og geti hagnýtt sér hann í daglegu lífi.

Barna- og unglingastarf
Við leggjum mikið upp úr góðri fræðslu og uppbyggingu fyrir börn og unglinga.

Unga fólkið hefur sínar samverustundir á föstudagskvöldum yfir vetrarmánuðina.

Auk föstudagsstundanna hittist sumt af unga fólkinu í heimahópum önnur kvöld vikunnar. Þar efla þau vináttuna og uppfræðast um kristindóminn, lífið og tilveruna.

Barnastarf kirkjunnar er mjög öflugt og fer fram á sunnudagsmorgnum eins og fyrr sagði. Barna- og unglingastarfið er opið öllum börnum og unglingum.


Annað starf
Í kirkjunni er fjölbreytt starf. Söfnuðurinn stendur fyrir ýmsum námskeiðum svo sem Alfanámskeiðum, hjónanámskeiðum, bænanámskeiðum og fleiri fræðslustundum. Einnig er veitt fjölskylduráðgjöf, sálgæsla og fyrirbænir. Fólki er gefinn kostur á að taka þátt í starfi heimahópa sem hittast reglulega í heimahúsum og eiga þar samfélag saman.

Prestur safnaðarins

Friðrik Schram, guðfræðingur

Staðsetning Kristskirkjunnar

Íslenska Kristskirkjan er til húsa að Fossaleyni 14 í Grafarvogi. Þar er kirkjusalurinn og skrifstofa safnaðarins, en hún er opin frá þriðjudegi til föstudags frá klukkan 13:00 til 17:00