Mikilvægi þess að lesa og íhuga Biblíuna er ótvírætt. Hér finnur þú ábendingar um mismunandi biblíulestrarskrár. Ein er hugsuð fyrir á sem vilja lesa alla Biblíuna á einu ári, önnur fyrir þá sem vilja fara sér hægar o.s.f. Vonandi finnur þú það sem hentar þér, en áríðandi er við sláum ekki slöku við lestur Guðs orðs.
Reynsla flestra sýnir að best er að lesa bæði í Gamla- og Nýja testamentinu daglega. Sumum finnst “þungt” að byrja á Gamla testamentinu, sérstaklega þeim sem eru ungir í trúnni og óvanir Biblíunni. Þeim er ráðlagt að byrja á Nýja testamentinu en lesa þó af og til í því gamla til að fá sem best yfirlit yfir rit Biblíunnar.
Mikilvægt er að ætla sér ekki of mikið, þ.e. finna sig ekki skuldbundinn til að lesa svo og svo marga kafla daglega og springa svo á limminu. Betra er að byrja smátt og auka síðan við lesturinn ef aðstæður leyfa. Ekki fá slæma samvisku þótt þér takist ekki að lesa það sem þú hafðir ætlað þér í dag. Lestu þann kafla þá bara á morgun eða hoppaðu yfir hann og taktu þann næsta þar á eftir. Aðalatriðið er að lesa, ekki endilega magnið eða í hvaða röð þótt öll regla sé af hinu góða.
Nytsamar upplýsingar og heimasíður:
Biblíulestraráætlun fyrir eitt ár
Trumal.is - biblíulestraráætlun fyrir eitt ár frá Heartlight
Lestur Biblíunnar
