Íslenska Kristskirkjan

Þú ert hérna: Forsíða Fræðsla Til umhugsunar Garðurinn heima
Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa

Garðurinn heima

Hvatning fyrir þig sem fylgir Kristi
Þegar ég settist niður til að í huga efni þessarar greinar skrifaði ég niður nokkrar spurningar sem útgangspunkta:
  • Hvað er hægt að segja við fólk sem maður trúir að gæti verið að ná mun meiri árangri í lífi sínu?
  • Hvernig á maður að fólk til að vakna upp, sjá möguleikana sem eru til staðar og byrja að framkvæma?
  • Hvernig er hægt að virkja fólk til góðra verka?

Ein leið til að virkja fólk er líklega að miðla til fólks hugmynd og markmiðum að stefna að. En það er einnig margt fleira sem kemur til.

Í þessari grein verður snert á þrem punktum sem eru mikilvægir til þess að kristinn einstaklingur geti náð árangri. Þessir punktar eru:

  1. Ræktaðu garðinn heima
  2. Vera jákvæð(ur)
  3. Starfaðu með öðrum

Vissulega er margt fleira sem þarf til þess að við náum árangri en það er hinsvegar ljóst að ef þessi þrjú atriði eru ekki í góðu lagi í lífi okkar er ólíklegt að það verði mikill árangur í lífi okkar með Kristi.

Ræktaðu garðinn heima
Ef þitt persónulega samfélag við Guð er ekki í góðu lagi , daglegur lestur, bæn og samtal við Guð þá vantar grunnforsendu þess að þú náir árangri sem kristinn einstaklingur. Það er vissulega hægt að starfa margt í Guðsríki og halda því áfram í einhvern tíma ílla nærður af orði Guðs og án þessa mikilvæga grundvölls en það er ólíklegt að það verði árangursríkt og einnig er það beinlínis hættulegt. Þeir sem starfa þannig í Guðsríki, vannærðir af samfélagi við Guð, verða skotmark fyrir óvininn. Hvernig hefði Jesús átt að svara Satan í eyðimörkinni ef hann hefði alltaf sofið frameftir í stað þess að kynna sér ritningarnar? Þeir sem ekki tryggja að reglulegt persónulegt samfélag við Guð sé til staðar þekkja verr en ella rödd Guðs til leiðsagnar í gegnum lífið og verð því m.a. auðveldari bráð fyrir óvininn.

Mín reynsla er sú að það séu alltof margir sem flaska á þessu grundvallaratriði sem samfélag okkar við Guð er. Hvernig get ég sagt og haldið því fram að of margir sinni því ílla? Jú, því ég þekki það af eigin raun og ég veit hversu mannleg og mistæk við erum velflest, a.m.k. ég. Kjarni málsins er sá að það er alvarleg mótsögn fólgin í því að starfa í Guðsríki en sinna ekki sínu eigin samfélagi við Guð. Allt starf í ríki Guðs hefur það jú að markmiði að fleiri fái að þekkja hann og að þeir sem þekkja hann þekki hann betur. Hvernig ætlum ég og þú að gera fleirum kleift að þekkja Guð án þess að hafa sjálf valið að þekkja hann hvern einasta dag? Þegar ég segi þekkja Hann hvern einasta dag meina ég að við höfum valið hvern dag að hleypa honum að í lífi okkar, valið að þekkja hann í dag. Þetta er mótsögn sem gengur ekki upp. Ég þekki það sjálfur af eigin raun. Það er sífelld barátta að taka frá tíma fyrir samfélag okkar við Guð. Mér myndi ekki detta í hug að gefa út grein sem þessa, með þennan boðskap nema vegna þess að mér hefur gengið vel að rækta mitt samfélag við Guð seinustu vikur og mánuði. Ég hef fundið hve mikið það hefur blessað líf mitt og vil því hvetja þig og aðra sem lesa þessa grein til þess að njóta sömu gæða sem gott og reglulegt samfélag við Guð er.

Við skulum breyta þessu, verum vel nærð, tökum okkur daglega stundir og ræktum samfélag okkar við Guð. E.t.v. ert þú í þeirri stöðu að hafa oft reynt að eiga reglulegar bænastundir en jafnoft gefist upp eða "dagað uppi". Ég segi við þig: Reyndu einu sinni enn! Guð spyr ekki að því hversu oft þú hefur reynt, hann vill styrkja þig í dag til þess að leita sín vegna þess að Hann þráir að eiga samfélag við þig einmitt í dag. Þó að þú missir einhverja daga út þá láttu það ekki draga úr þér kjarkinn heldur haltu ótrauð(ur) áfram. Eftir því sem þú gerir þetta oftar verður þetta meiri vani í þínu lífi, fastur liður sem sífellt erfiðara verður fyrir utanaðkomandi áhrif að hagga. Persónulega er ég kominn á þann stað í mínu lífi að ég geri bara alls ekki ráð fyrir því að ná árangri yfirleitt nema lestur í orði Guðs og bæn til Hans sé dagleg venja í mínu lífi. Þetta er oft erfitt, hver sagði svo sem að það ætti að vera auðvelt? Er það ekki þannig að allt sem er mikilvægt og mikils virði í lífinu er eitthvað sem þarf að hafa fyrir og vinna stöðugt að? Menntun, gott hjónaband, vel upp alin börn, góðir vinir? Það er sama hvaða dæmi er tekið, að öllu þarf að hlúa og vinna að. Samfélag okkar við Guð er eins, það þarf stöðugt að vinna að því, hvern dag lífs okkar.

Vertu jákvæð(ur)!
Ef við ætlum að ná árangri þá verðum við að opna okkur fyrir þeim möguleikum sem eru til staðar. Mikilvægt er að horfa frekar á hvað hægt er að gera heldur en að horfa á hvað er ekki hægt að gera. Temjum okkur jákvæðan hugsunarhátt, þá gengur allt miklu betur. Það er ákveðinn leyndardómur fólginn í því að nálgast verkefni á jákvæðan hátt. Ef hugur okkar er jákvæður þá er hann mun líklegri til að fara strax af stað með að finna mögulegar leiðir til að leysa verkefnið. Það gerist vegna þess að það er til staðar opnun á því að verkefnið sé leysanlegt og að það verði leyst. Ef við erum búin að ákveða með sjálfum okkur að verkefnið sem fyrir höndum er sé íllleysanlegt eða jafnvel óleysanlegt þá er hugur okkar síður að hafa fyrir því að finna mögulegar lausnir og virkni hugsans er lítil. Ef við hinsvegar nálgumst verkefnið á jákvæðan hátt og höfum trú á því að það sé leysanlegt þá er hugur okkar mun virkari og þar með mun líklegri til að koma með góðar lausnir á verkefninu sem liggur fyrir. Hefur þú t.d. velt fyrir þér muninum á því að nota orðið verkefni eða vandamál? Prófaðu að lesa aftur þennan undirkafla um jákvæðni og notaðu orðið vandamál þar sem orðið verkefni er notað. Breytist viðmót textans við þetta?

Þú munt koma sjálfum þér á óvart ef þú lærir að temja þér að nálgast verkefni á jákvæðan hátt, það búa nefnilega fleiri hæfileikar í þér heldur en þú heldur! Staðreyndin er sú að fæst okkar nýta hæfileika sína til fulls, það að temja sér jákvæðan hugsunarhátt er mikilvægt til að nýta hæfileika sína, uppgötva nýja hæfileika og til þess að ná árangri í lífinu.

Starfaðu með öðrum
Mér hefur virst kristið fólk oftast gera mistök þegar samfélagið við Guð er vanrækt og þegar fólk ræðir lítið eða ekki við trausta kristna vini en er einangrað. Vissulega er það sumt sem best er að gera einn. En hafðu þá a.m.k. einhvern bakhjarl sem styður þig og sem getur spurt þig gagnrýninna ( rýna til gagns ) spurninga um tilgang þinn, markmið, forsendur, stöðu o.s.frv. Flest í Guðsríki er samvinnuverkefni. Forsenda þess að slíkt gangi vel er að einhugur og eining ríki í hópnum sem að verkefninu stendur. Friðrik Schram nefndi eitt sinn mikilvægt atriði í þessu sambandi: Heilindi okkar gagnvart Guði verða prófuð í samskiptum okkar við aðra.

Hugsaðu um þetta! Rifjaðu þetta a.m.k. upp þegar þér finnst samskiptin eitthvað byrja að verða tæp. Spurðu þá sjálfan þig: Er mitt samfélag við Guð í lagi? Er ég heil(l) gagnvart Guði? Þessi umræða vísar aftur á fyrsta puntkinn í þessari grein, sem sé því að rækta garðinn sinn heima.

Finndu þér fólk að starfa með sem hefur sömu hugsjón eða getur haft sömu hugsjón ef þið vinnið að því! Einhvernveginn er það svo að kirkjan er fólk sem vinnur saman. Jesús valdi jú 12 lærisveina og þeir lærðu saman að fylgja Honum. Við tökum framförum m.a. með því að læra að umgangast hvort annað af nærgætni, fyrirgefa hvort öðru þegar eitthvað kemur upp og vinna saman að því að fleiri fái að þekkja Þann sem gerði okkur kleift að stíga inn í nýtt líf, líf sem varir að eilífu.