Íslenska Kristskirkjan

Þú ert hérna: Forsíða Fræðsla Til umhugsunar Frá óreiðu til árangurs
Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa

Frá óreiðu til árangurs

Vissir þú, að áður en heimurinn varð til, hafði Guð gert áætlanir um líf þitt? Hefur þú hugleitt að það er sama hvert þú ferð: í siglingu um Kyrrahafið, í ferð til Tíbet eða á milli borgarhluta í London með neðanjarðarlest; Guð er allsstaðar og það eina sem þú þarft að gera er að hleypa honum að þér? Gerir þú þér grein fyrir því að einmitt í dag vonast Guð eftir því að geta átt samfélag við þig? Við mennirnir vorum skapaðir til samfélags við Guð, það er sama hvert við förum eða hvernig við ráðstöfum ævi okkar, öll erum við þannig gerð að þarfnast samfélags við Guð.

En hversvegna eru þá svo fáir sem virðast ná þessari “tengingu” við Guð? Jú, sambönd byggja á frjálsu vali þeirra sem eru í sambandi. Vinátta byggir á því að þeir sem eru vinir velji að vera vinir. Hjónaband er hjónaband vegna þess að karl og kona velja að eyða ævinni saman. Hjónaband verður gott hjónaband ef hjónin hlúa að sambandi sínu hvern dag lífs síns, uppfylla að fyrrabragði þarfir hvors annars og taka hvort annað aldrei sem sjálfsagðan hlut. Þannig þarf því samfélag manns við Guð að vera, það er frjálst val mannsins að eiga þetta samfélag við Guð alveg eins og Guð valdi að skapa manninn í sinni mynd til samfélags við sig.

Frá vissu sjónarhorni erum við mannfólkið mjög lík. Við höfum drauma og þrár, við erum mistæk, við höfum hæfileika, við höfum góðar hliðar, við höfum slæmar hliðar. En frá öðru sjónarhorni erum við mjög ólík. Hver einasti einstaklingur er sjálfstæður einstaklingur, hefur sinn sérstaka líkama, sína skapgerð, sinn bakgrunn, sitt uppeldi o.s.frv. Í augum Guðs erum við öll einstök. Við erum einstök sköpun hans, það finnst enginn einstaklingur sem er nákvæmlega eins og við né mun nokkurntíman verða. Við erum líka “einstök” í þeirri merkingu að vera dýrmæt: Við erum Guði svo dýrmæt að hann gekk alla leið til þess að tryggja að við gætum nálgast hann og átt samfélag við hann ef við kjósum svo. Hann gekk alla leið með því að fæðast sem maður á þessari jörð og deyja á krossi fyrir okkar misgjörðir. Hann hefur því nú þegar bætt fyrir öll okkar mistök, það eina sem við þurfum að gera er að þiggja og taka við þessari gjöf sem Guð hefur gefið okkur. Gjöfin er sonur hans, Jesús.

Óreiða almennt
Það er til kenning sem segir að óreiða sé alltaf að aukast í heiminum. Dæmi um það er hvernig freon úr sprautubrúsa veldur keðjuverkun í lofthjúpnum, keðjuverkun sem eyðir ósoni úr efstu lögum gufuhvolfsins. Við sjáum þetta líka á heimilum okkar: ryk í hornum, gólf sem þarf að skúra, óhreint eldhúsborð. Óreiðan eða “chaos” er sífellt að aukast í heiminum segir þessi kenning. Þetta er viðurkennd kenning á meðal vísindamanna.

Óreiða í okkar lífi
Margir upplifa líf sitt í óreiðu:

 

  • Fjárhagserfiðleikar
  • Fjölskylduerfiðleikar
  • Erfiðleikar í hjónabandi
  • Stefnuleysi
  • Tilgangsleysi
  • Tímaskortur

Listinn getur verið langur, það er margt sem hrjáir fólk. En hvað er til ráða? Hvernig getum við komið böndum á líf okkar þannig að það sé í jafnvægi og með því náðst varanlegur árangur, okkur sjálfum og umhverfi okkar til blessunar? Vonandi er það markmið okkar allra að við náum árangri í lífi okkar. Til að ná árangri þarf að hafa stefnu og markmið. Það liggur í hlutarins eðli, að án stefnu og markmiðs er erfitt að ná árangri, það er meira að segja mjög erfitt að meta hvort vöxtur hafi átt sér stað nema hægt sé að mæla það útfrá markmiði sem stefnt er að. Í þessu liggur vandi margra. Markmiðin eru annað hvort ekki til staðar í lífi fólks eða þá hitt, sem er litlu skárra, að markmiðin, sem fólk þó hefur, eru slæm og þess eðlis að framgangur þeirra skilar ekki því sem hefur raunverulegt gildi fyrir líf fólks. Einnig er algengt að fólk hafi óljós markmið. Óljós markmið geta verið sett af góðum hug en e.t.v. ekki nógu skýr til þess að markvisst sé hægt að stefna að þeim. Þannig verða óljós markmið til þess að gera fólk ósátt við það líf sem það lifir í dag en hins vegar ekki nógu skýr til þess að hægt sé að vinna að úrbótum með góðu móti. Dæmi um óljóst markmið væri: “Ég ætla að vera betri við konuna mína.” Það sem vantar í svona markmið til þess að það verði skýrt markmið er skilgreining á því hvernig og hvenær markmiðinu er náð. Betra væri að segja: “Ég ætla að vera betri við konuna mína með því að koma henni skemmtilega á óvart að lágmarki einu sinni í viku.” Þetta markmið er þannig að það leikur enginn vafi á því hvort markmiðið hefur náðst á tilteknum tíma eða ekki.

Öruggusta leiðin til að finna góð markmið fyrir líf sitt er að spyrja þann sem skapaði líf okkar, hann veit hvað er okkur fyrir bestu. Það er Guð sem kann best að greina á milli hvað veitir stundarfró og hins sem hefur í sér fólgið varanleg gæði.

Regla í stað óreiðu
Í sálmi 104:5 stendur: “Þú grundvallaðir jörðina á undirstöðum hennar, svo að hún haggast eigi um aldur og ævi”. Í sálmi 40:3 stendur svo: “Hann dró mig upp úr glötunargröfinni, upp úr hinni botnlausu leðju, og veitti mér fótfestu á kletti, gjörði mig styrkan í gangi.”

Mín reynsla er sú, að það sé Guð sem kemur með reglu þar sem áður var óreiða. Hann gerir það í sköpun sinni, ef hans nyti ekki við væri engin sköpun í dag. Hann kemur líka með reglu í stað óreiðu í lífi þess fólks sem hleypir honum að sér. Það er eitt af því stórkostlega við það að hleypa Guði að í lífi sínu: Hann hefur áhuga á okkur og hjálpar okkur til að ná hámarksárangri með lífi okkar. Með því móti verðum við umhverfi okkar til blessunar og lifum sjálf lífi sem er fullt af tilgangi og raunverulegum gæðum.

Val Guðs, val okkar
Í Jesú Kristi valdi Guð að deyja í okkar stað. Þannig varð okkur, mér og þér, gert kleift að geta valið að fylgja Guði, gefa honum líf okkar. Á þeim tímum sem nú eru heyrum við stöðugt fréttir af óreiðu, bæði í lífi fólks, lífi þjóða og í náttúrunni. Í dag er tækifæri fyrir þig, sem lest þessar línur, að ákveða hvað þú vilt gera úr þínu lífi. Ég vil hvetja þig til þess að ná hámarksárangri í lífinu, til þess þarftu að þekkja þann sem þekkir þig betur en þú sjálf(ur). Guð tekur við öllum þeim sem leita hans í einlægni. Vertu ófeimin(n) við að leita hans, spurðu hann spurninga, talaðu við hann með þínum eigin orðum. Hann mun mæta þér eins og þú þarft á að halda.