Íslenska Kristskirkjan

Þú ert hérna: Forsíða Fræðsla Til umhugsunar Hversu vel þekkir þú Guð? – Treystir þú honum?
Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa

Hversu vel þekkir þú Guð? – Treystir þú honum?

Hversu vel þekkir þú Guð? Getur verið að hann standi við hlið þér og sé að kalla á þig en þú hreinlega gerir þér ekki grein fyrir því að það er hinn lifandi Guð, skapari himins og jarðar sem við hlið þér stendur, albúinn til að veita þér alla þá hjálp sem þig vantar? Að þekkja hann er svo eitt, en annað að vera tilbúinn að taka við hjálp hans og leiðsögn og treysta því að það sé manni fyrir bestu.

Við skulum lesa þekkta frásögu úr Matteus:

Tafarlaust knúði hann lærisveina sína að fara í bátinn og halda á undan sér yfir um, meðan hann sendi fólkið brott. Og er hann hafði látið fólkið fara, gekk hann til fjalls að biðjast fyrir í einrúmi. Þegar kvöld var komið, var hann þar einn.

En báturinn var þegar kominn langt frá landi og lá undir áföllum, því að vindur var á móti. En er langt var liðið nætur kom hann til þeirra, gangandi á vatninu.

Þegar lærisveinarnir sáu hann ganga á vatninu, varð þeim bilt við. Þeir sögðu: Þetta er vofa, og æptu af hræðslu. En Jesús mælti jafnskjótt til þeirra: Verið hughraustir, það er ég, verið óhræddir. Pétur svaraði honum: Ef það ert þú, herra, þá bjóð mér að koma til þín á vatninu. Jesús svaraði: Kom þú! Og Pétur sté úr bátnum og gekk á vatninu til hans. En sem hann sá rokið, varð hann hræddur og tók að sökkva. Þá kallaði hann: Herra, bjarga þú mér! Jesús rétti þegar út höndina, tók í hann og sagði: Þú trúlitli, hví efaðist þú?

Þeir stigu í bátinn, og þá lægði vindinn.

(Matteus 14:22-32)

Í þessari sögu í Matteus lesum við söguna um það þegar Jesús gekk á vatninu yfir til lærasveina sinna sem voru í báti útaf landi. Það var vont veður og það er ekki erfitt að ímynda sér undran lærisveinanna þegar þeir sjá einhvern koma gangandi á vatninu! Enda æptu þeir af hræðslu og haldandi að þarna hlyti vofa að vera á ferð. Gátu þeir ímyndað sér að þarna væri vinur þeirra og lærimeistari, að koma gangandi til þeirra? Þeir voru búnir að vera með honum um tíma, þekktu hann vel og höfðu orðið vitni að margskonar undrum, táknum og kraftaverkum. Meðal annarra var Jesú ný búinn að metta þúsundir fólks með fimm litlum fiskum og tveim brauðhleifum sama kvöld. En jafnvel með það í huga er ekki erfitt fyrir okkur að ímynda sér að þeir áttu síst von á þessu.

Þessi saga bendir okkur meðal annars á það að Drottinn birtist okkur á margvíslegan hátt, og við kringumstæður sem við eigum kannski síst von á honum. Að jafnvel þegar við erum ein úti á reginhafi heimsins, getur hann auðveldlega gengið til okkar og boðið okkur hjálp sína. Já, í stuttu máli, hann er alltaf tilbúinn að hjálpa, allstaðar. Spurningin er hinsvegar, ert þú tilbúinn að þyggja hana? Treysta Jesú fyrir lífi þínu, og stíga útá vatnið?

Spurningin er hvort við þekkjum Drottinn þegar hann mætir okkur í ólgusjó lífsins og réttir okkur hönd sína? Erum við tilbúin að opna augu okkar andlega séð, fyrir því að Guð kann að bjóða fram hjálp sína á annan hátt en við erum að biðja um hana? Erum við tilbúin að taka á móti kærleika hans og hjálp, þó hann sé ekki í nákvæmlega sömu umbúðum og við höfðum gert okkur í hugarlund.

Í fertugasta kafla Jesaja lesum við:

Veistu þá ekki? Hefir þú ekki heyrt? Drottinn er eilífur Guð er skapað hefir endimörk jarðarinnar. Hann þreytist ekki, hann lýist ekki, speki hans er órannsakanleg. Hann veitir kraft hinum þreytta og gnógan styrk hinum þróttlausa. Ungir menn þreytast og lýjast, og æskumenn hníga, en þeir, sem vona á Drottinn, fá nýjan kraft, þeir fljúga upp á vængjum sem ernir. Þeir hlaupa og lýjast ekki, þeir ganga og þreytast ekki.

(Jesaja 40:28-31)

Kannski þekkir þú ekki þennan Guð, sem veitir þér kraft og gnógan styrk. En það eru ein af fjölmörgum fyrirheitum hans, sem okkur eru gefin í orði hans. Ef þú ert einn af þeim sem ert að sligast undan álagi heimsins, þrýstingi fólks í kringum þig og samfélagsins um árangur og hvað það kann að vera, þá býður Drottinn Guð, skapari himins og jarðar fram hjálpandi hönd sína. Viltu taka þeirri áskorun að leggja stolt þitt til hliðar og þiggja raunverulega hjálp?

Um leið og Jesús heyrði hróp óttasleginna lærisveina sinna í bátnum, svaraði hann þeim: “Verið hughraustir, það er ég, verið óhræddir”. Pétur var fyrstur til að sannreyna að þarna væri meistari þeirra á ferð og sagði: “Ef það ert þú, herra, þá bjóð mér að koma til þín á vatninu.” Jesús svaraði efasemdum Péturs að bragði og bað Pétur að koma útá vatnið!

Ert þú tilbúinn að stíga útá vatnið? – Guð stendur með útréttan arminn og vill hjálpa þér. En spurningin er, hvort þú ert tilbúinn að taka við þeirri hjálp sem í boði er og treysta því að Guð sé með þér, og vilji þér aðeins það besta sem lífið hefur uppá að bjóða.

Það er hvatning mín til þín, kæri vinur, að taka þessari áskorun. Að stíga útá vatnið og treysta Jesú Kristi, hinum lifandi guði fyrir framtíð þinni og velferð. Þetta þýðir ekki að vatnið eigi eftir að vera lyngt það sem eftir er. Nei, það var rok og ólgusjór hjá lærisveinunum, jafnvel þó að Jesús stæði fyrir framan þá, og það var rokið sem varð til þess að Pétur missti sjónar af Jesú eitt augnablik, og samstundis byrjaði hann að sökkva. Maður getur vel ímyndað sér óttann sem sótti um leið á Pétur, standandi útá miðju vatni, langt frá landi í vonsku veðri. En um leið og hann kallaði á meistara sinn og vin, sem stóð álengdar, stóð ekki á hjálpinni. Jesú rétti honum strax hendina og kom honum í bátinn að nýju. Þegar Jesús var kominn í bátinn til lærisveina sinna, þá lægði fyrst storminn.

Lærðu að treysta Drottni, prófaðu hvort hjálp hans sé raunveruleg og sönn. Gangtu fram í þeim orðum sem til okkar eru töluð í orði Guðs, orðum eins og við lesum í Jesaja 41:

Óttast þú eigi, því að ég er með þér. Lát eigi hugfallast, því að ég er þinn Guð. Ég styrki þig, ég hjálpa þér, ég styð þig með hægri hendi réttlætis míns.

Því að ég, Drottinn, Guð þinn, held í hægri hönd þína og segi við þig: Óttast þú eigi, ég hjálpa þér!

(Jesaja 41:10,13)

Þó svo þú missir móðinn eitt stundarkorn, eða óttast storminn sem úti hvín, þá getur þú verið viss um að þú getur ávallt gengið að kærleika Guðs og hjálp vísri. Hvar sem er, hvenær sem er og hverjar sem aðstæður þínar eru.

Bæn:

Drottinn Guð, ég þakka fyrir nærveru þína og kærleika. Hjálpa þú mér að sleppa takinu og treysta þér í ólgusjó lífsins. Að sækja vísdóm og traust í orð þitt og læra að þekkja þig, og treysta á hjálp þína sem þú gefur mér fyrirheit um í orði þínu. Í Jesú nafni. Amen.

Drottinn blessi þig og leiði. Það er von mín og bæn að þú takir á móti hjálp Drottins og lærir að treysta Guði fyrir lífi þínu.