Íslenska Kristskirkjan

Þú ert hérna: Forsíða Fræðsla Orð frá prestinum Spámaður frá Sviss í heimsókn á Íslandi
Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa

Spámaður frá Sviss í heimsókn á Íslandi

Willy Öninger og Gertrud kona hans voru hér á landi dagana 11. til 15. des. Willy er bóndi og kaupsýslumaður og reka þau hjón nautgripabú í svissneksu Ölpunum –landinu hennar Heiðu! Willy er mjög næmur í Andanum og fær mikið af sýnum og opinberunum. Hann var í haust staddur í bækistöð Marísystra í Kanaan í Þýskalandi og þar hittu þau hjónin Ómar Kristjánsson, kaupsýslumann, sem var þar í heimsókn. Þetta var töluvert löngu áður en íslensku bankarnir hrundu. Þarna á staðnum fékk Willy opinberun um að svört óveðursský væru yfir Íslandi. Hann sagði Ómari frá sýninni og hvatti hann, þegar heim kæmi heim til Íslands, til að kalla saman kristna presta og leiðtoga til að biðja fyrir landinu. Þetta gerði Ómar og síðan í lok ágúst hafa m.a. verið haldnar vikulegar bænasamkomur í sr. Friðriks-kapellu við íþróttasvæði Vals.

Af þessu tilefni bauð Ómar þeim hjónum, Willy og Gertrud, til Íslands, en ekki gat orðið af heimsókninni fyrr en nú í desember. Hittu þau hjón m.a. það fólk sem komið hafði saman á bænastununum. Einnig töluðu þau á nokkrum samkomum, m.a. í Ísl. Kristskirkjunni su.kvöldið 14. des. Það var frábær samkoma og fluttu þau okkur og íslensku þjóðinni uppörvandi boðskap um að Guð ætli að snúa við högum íslensku þjóðarinnar og reisa hana úr þeim kröggum og niðurlægingu sem hún hefur orðið fyrir í haust. Einkum voru það fyrstu níu versin í 60. kafla spádómsbókar Jesaja, sem þeim fannst Guð vilja flytja okkur. Þau eru boðskapur náðar og vonar og endurreisnar. Eftir ávarp Willys og Gertrudar báðu þau fyrir mörgum einstaklingum sem komu fram til fyrirbænar. Var þetta yndisleg samkoma og mjög uppörvandi. Íslenska þjóðin er að ganga gegnum dimman dal, en það ástand verður ekki viðvarandi v.þ.a. Guð mun gefa betri tíma og blessa land okkar og þjóð á ný.

Það er frábært að Guð flytur okkur boðskap sem uppörvar og gefur von, en það má þó ekki verða til þess að við lærum ekki af þeim mistökum sem þjóðin hefur gert, þ.e. að lifa um efni fram, gleyma sér í óhóflegri neyslu og láta sér lítið finnast um Guð. Höldum áfram að að biðja þess að þjóðin iðrist, snúi sér til Guðs og geri bót og betrun svo að við missum ekki af þeirri blessun sem Guð þráir að veita okkur.