Íslenska Kristskirkjan

Þú ert hérna: Forsíða Fræðsla Orð frá prestinum Eigum við að mótmæla?
Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa

Eigum við að mótmæla?

Já og nei. Mótmæli geta verið margs konar. Áminning getur líka verið mótmæli. Stundum er rétt að mótmæla. Stundum ekki. Við þurfum að fá “grænt ljós” frá Guði til að efna til mótmæla, ekki gera það vegna skyndlegrar gremju, reiði eða skapvonsku. Spurningin er hvort raunhæf ástæða sé til að mótmæla og líka hvernig mótmælin eru borin fram. Móse mótmælti kúgun faraós á Ísraelsmönnum og það á mjög áhrifamikinn hátt. Natan spámaður áminnti Davíð fyrir synd hans. Spámenn Gamla testamentisins áminntu konungana þegar þeir viku af vegi Guðs og beittu þegnana ofríki. Jóhannes skírari mótmælti hórdómi Heródesar og var hálshöggvinn fyrir. Jesús mótmælti helgidómsbrotunum með því að reka kaupmenn, víxlara og skepnur út úr forgarði musterisins. Það var róttæk aðgerð en réttmæt. Það var nefnilega skráð í Gamla testamentinu að helgidómurinn ætti að vera bænastaður fyrir allar þjóðir -þ.e. forgarðurinn. Þar áttu útlendingar m.a. að fá að nálgast Guð og þess vegna átti þar að vera kyrrð og friður, en ekki háreysti, prútt og peningaskark, jarm í lömbum og kurr í dúfum. Friðurinn þar var úti og þar með tilgangur forgarðsins. Þess vegna var Jesús í fullum rétti og gerði það sem nauðsynlegt var. Enginn annnar þorði að hreinsa þarna til. Stundum þarf að láta verkin tala. Kristið fólk í Kaupmannahöfn límdi t.d. pappír fyrir glugga klámverslana þar í borg að næturlagi til að andmæla vaxandi klámvæðingu.

Stundum þarf að áminna yfirvöldin með því að senda þeim bréf, tölvupóst, skrifa í blöðin og eða fara og tala við ráðamenn. Eins gæti verið nauðsynlegt að fara á þeirra fund með kröfuspjöld til að ná enn frekar athygli þeirra og vekja almenning til umhugsunar um yfirstandandi ranglæti sem þrífst í skjóli yfirvaldanna. Eitt megum við hins vegar ekki gera: valda líkamlegu tjóni. Þá höfum við farið yfir strikið.

Einkenni okkar kristinna ætti að vera ljúflyndi. “Ljúflyndi yðar verði kunnugt öllum mönnum” segir Páll postuli. Jesús var dagfarslega ljúfur, en hann gat brínt raustina og áminnt hrokafulla valdastétt fyrir ranglæti. En það lét hann nægja nema þegar hann hreinsaði helgidóminn, eins og fyrr var á minnst.

Mótmælum þegar þess er þörf, en biðjum umfram allt fyrir yfirvöldunum og að þau framfylgi réttlætinu en setji ranglætinu skorður.