Íslenska Kristskirkjan

Þú ert hérna: Forsíða Fræðsla Orð frá prestinum Leið til að verða hamingjusamur!
Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa

Leið til að verða hamingjusamur!

Mig langar að segja ykkur leyndarmál velgengninnar í mínu lífi. Byrjunin var sú að ég átti yndislega foreldra sem færðu mig Kristi í heilagri skírn þegar ég örlítill snáði. Síðan tók bróðir minn mig með sér í KFUM þegar ég var 6 ára. Í því góða félagi var ég síðan í yfir 20 ár og sótti trúfastlega alla fundi sem voru fyrir minn aldurshóp. Þar lærði að þekkja Krist og fylgja honum. Þá skapaðist sú venja hjá mér að láta mig aldrei vanta á fund ef þess var nokkur kostur. Eftir það hélt gangan með Guði áfram í Ungu fólki með hlutverk og síðan í Íslensku Kristskirkjunni þar sem ég nú. Ég tel stóran, já STÓRAN, þátt í því að ég hef varðveist í trúnni og fengið að vaxa í þekkingu og þroska, vera þann að ég sótti samfélagið af mikilli trúfesti. Ég held að margir átti sig ekki á mikilvægi þess að rækja samfélagið sitt reglulega, ekki bara af og til eða þegar “vel stendur á” .

Í ljósi reynslu minnar vil ég hvetja þig til að láta þig helst aldrei vanta í kirkjuna þegar söfnuðurinn kemur saman til guðsþjónustu á helgum degi. Að vera með bræðurm og systrum á Drottins degi í kirkjunni er mér algjör nauðsyn. Á öllum þeim samkomum sem ég hef sótt hefur Guð gert eitthvað gott í lífi mínu. Það hafa kannski ekki orðið stórstígar framfarir í hvert skipti, en áfram hefur miðað. Vöxturinn í náttúrunni er jafn og hægur. Eins er með vöxt trúarinnar, en þá verður maður að vera á réttum stað –í kirkjunni á helgum degi. Jurt sem sífellt er færð úr stað vex illa, jafnvel deyr. Trúaður maður sem vanrækir söfnuðinn sinn nær ekki miklum þroska í trúnni

Kannski finnst þér þetta til of mikils ætlast, að fólk komi í kirkju á hverjum sunnudegi. Þjóðfélag okkar er ekki hrifið af reglu og aga. Margir gera það eitt sem þeir vilja hverju sinni og þeir eru í stuði til að gera. Við myndum ekki halda vinnunni okkar lengi ef við mættum bara þegar okkur langar í vinnuna. Og námsmaðurinn nær ekki miklum árangri ef hann vantar oft í tíma. Hann færi á mis við marga fróðleiksmola sem nauðsynlegir eru til að fá góðar einkunnir og komast á æðra námsstig.

Taktu áskorun minni ekki neikvætt. Ekki upplifa þig dæmdan. Ef þú hefur verið óduglegur við að mæta í kirkjuna, taktu þig þá á! Ekki afsaka þig með því að aðstæður þínar séu erfiðar. Í flestum tilfellum getum við sótt kirkju ef við viljum. Það er bara spurningin um hvað hefur forgang hjá okkur. Jesús var alltaf í samkunduhúsinu á hvíldardeginum. Hann er okkar fyrirmynd. Við þurfum að sýna söfnuðinum okkar samstöðu, taka þátt í bæninni og löfgjörðinni, hlýða á orð Guðs (þótt ræðurnar séu ekki alltaf “æðislegar”!!). Ef við gerum þetta með reglu og með réttu hugarfari verður árangurinn andlegur vöxtur og þroski í Guði. Hvers viljum við óska okkur betra? Sjáumst í kirkjunni á sunnudaginn ! :-)