Íslenska Kristskirkjan

Þú ert hérna: Forsíða Fræðsla Orð frá prestinum Sorgardagur hjá þjóð og kirkju
Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa

Sorgardagur hjá þjóð og kirkju

Sunnudaginn 27. júní taka ný hjúskaparlög gildi hér á landi. Þau eru byltingarkennd: Í þessum nýju lögum er ekki rætt um karl og konu sem aðila að hjúskapnum, heldur einstaklinga. Áherslan á kynferði er farin. Nú getur karl gifst karli og kona konu. Þetta er vitni um mjög alvarlega siðferðlega hnignun þjóðfélags okkar, já, nánast ótrúlega. Hver hefði látið sér detta í hug, þegar umfjöllunin um svokölluð réttindi samkynhneigðra var að fara af stað fyrir alvöru, á sjöunda áratug síðustu aldara, að árið 2010 gætu samkynhneigðir gifst örðum sama kyns og orðið hjón og hátíðir yrðu haldnar í kirkjum af því tilefni !!

Það er mikið umhugsunarefni hvernig farið var að því að snúa þúsundum fólks og nær öllum alþingismönnum þjóðarinnar til fylgis við þennan ranga málstað. Ég ætla ekki að gera það hér, en að baki þessum árangri Samtakanna 78 er mikil vinna, mikill lobbyismi og stöðugur áróður fyrir málstaðnum. Þau vinnubrögð hafa ekki alltaf verið til fyrirmyndar.

Það sem einkennir nútímafólk er þetta viðhorf: þú mátt gera það sem þú vilt ef þú lætur mig í friði. Siðferði þjóðarinnar er mjög lágt og því kærir fólk sig kollótt þó einhverjir sofi hjá öðrum sama kyns, lifi í lauslæti og geri það sem þeir vilja í þessum málum.

Innan þjóðkirkjunnar hafa “frjálslyndir” prestar og kirkjustarfsmenn -þeir eru í reynd ekki frjálslyndir heldur mjög einstrengingslegir og hafa sýnt mikinn skort á umburðarlyndi í garð þeirra sem hugsa öðru vísi en þeir-, þeir hafa “lagt undir sig” stofnanir þjóðkirkjunnar, biskupsembættið, prestastefnu og kirkjuþing. Þar hefur þetta fólk hamrað á baráttumálum samkynhneigðra, og það svo ákaft og hart og þeir sem hafa viljað standa á móti hafa verið ofurliði bornir. Þar hafa vinnubrögðin alls ekki verið kristileg heldur hreinn yfirgangur. Biskup hefur, þrátt fyrir andúð á hjúskap samkynhneigðra, orðið að lúta í lægra haldi eins og alþjóð veit. Þjóðkirkjan hefur nú beygt sig fyrir hinum nýju lögum og mun í framtíðinni gefa saman samkynhneigða í “hjónaband”. Auðvitað verður það ekki hjónaband, heldur afskræming þess. Hjónaband er einungis milli karls og konu. Misvitrir löggjafar og háværir þrýstihópar geta ekki breytt orði Guðs. Jesús sagði að hjónabandið væri milli karls og konu, ekki karls og karls eða konu og konu.

En nú er málið í höfn að mati stuðningsfólks sambúðar samkynhneigðra og á næstu árum og áratugum munum við fá að sjá dapurlegar afleiðingar þess að fólk snýr baki við orði Guðs. Um það mun ég fjalla síðar.