Íslenska Kristskirkjan

Þú ert hérna: Forsíða Fræðsla Orð frá prestinum Frábær fjölskylduvika á Eyjólfsstöðum
Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa

Frábær fjölskylduvika á Eyjólfsstöðum

Hin árlega fjölskylduvika á Eyjólfsstöðum á Héraði tókst mjög vel. Allir, ungir sem eldri, nutu þess að vera saman eina viku á þessum fallega stað. Veðrið var hið besta svo að fólk gat mikið verið úti við leik og störf og einnig áttum við andlegar stundir úti undir berum himni. Á morgnana voru fræðslustundir og samfélag og þá skipt í aldurshópa. Ýmis efni voru tekin fyrir og biblíutextar. Vegna hins góða veðurs var gjarnan farið í gönguferðir um nágrennið og með börnin í skógarferð og þeim leyft að gróðursetja tré. Hoppukastali var á staðnum, börnunum til mikillar ánægju og boltaleikir mikið iðkaðir. Á kvöldin voru samkomur fyrir unglinga og fullorðna –mjög góðar stundir. Síðasta morguninn var svo kveðjustund þar sem margir tóku til máls, þökkuðu fyrir sig og sögðu frá reynslu sinni af vikunni. Síðdegis suma dagana var unnið við lagfæringar á lóðinni við gamla íbúðarhúsið. Því verki tókst að ljúka til gleði og ánægju fyrir alla.

Það sýnir sig að þessar fjölskylduvikur eru ómissandi þáttur í starfi safnaðarins. Margir komu frá Reykjavík, aðrir frá Akureyri og auk staðarfólks kom fólk frá Egilsstöðum og víðar að af Austurlandi. Vorum við úr ýmsum kirkjusöfnuðum og jók það á fjölbreytileikann.

Eyjólfsstaðir eru yndislegur staður. Náttúrufegurðin er einstök og ekki spilla hinir ungu skógarlundir sem vaxa víðs vegar á landareigninni. Við biðjum staðnum og þeim sem þar búa blessunar Guðs, að vilji Guðs verði þar í öllu og að staðurinn megi áfram sem hingað til þjóna Guðs fólki og verða Honum til dýrðar.