Þá ætlum við öll sem verðum í bænum og eigum lausa stund milli 4 og 5 síðdegis að koma saman í Hallgrímskirkju og eiga gleðiríka bænastund. Þá er upplagt fyrir heilu fjölskyldurnar –pabba, mömmu og börn, og líka afa og ömmur- og líka einhleypa, að koma og syngja saman lofsöngva og biðja fyrir þjóð okkar. Hugmyndin er að þetta verði skemmtileg bænastund! ....létt verði yfir öllu, fólk glatt og hresst og eftirvænting í hópnum. Börnin geta komið með blöðrurnar og ýlurnar sem þau fengu niðri í bæ og látið geyma þá hluti í öruggri vörslu meðan stundin í kirkjunni fer fram. Ekki má taka gasblöðrur með inn í kirkjusalinn! Ef börnin misstu takið af þeim andartak myndu þær svífa upp og “sitja fastar” uppundir kirkjuþakinu! Þá væru góð ráð dýr! Einu sinni var að skoða þinghúsið í Washington DC og þar voru líka hópar af skólabörnum í sömu erindagjörðum. Einhver hafði misst gasblöðru úr höndunum á sér og þarna sat hún “föst” efst uppundir aðalhverflingu hússins. Augu allra beindust að henni en síður að málverkunum og hinum herlegheitunum sem fyrir augu bar. Eina ráðið var eflaust að skjóta hana niður með loftbyssu! Nei, það ætlum við ekki að láta gerast í Hallgrímskirkju þann sautjánda. Tilgangurinn er hins vegar að senda heitar bænir upp, ekki aðeins uppundir þak kirkjunnar heldur hærra, já að hástóli Guðs.
Ég hvet ykkur sem allra flest að fara á þessa bænasamkomu og bjóða vinum og hverjum sem er með (allir eru velkomnir). Gerum þetta að sannkallaðri hátíð. Okkur sem að stundinni stöndum finnst þetta vera áfangi að því að hér verði árlega stór samkirkjulegur bænadagur sem dregur að sér fjölda fólks úr öllum kirkjudeildum.

