Páskarnir breyttu öllu
Ef Jesús hefði ekki risið upp frá dauðum hefði allt verið búið. Þá hefðu lærisveinarnir að öllum líkindum farið aftur norður til Galíleu og snúið sér að fyrri störfum. Sagan um Jesú, kraftaverkin og allt hitt hefðu smám saman fallið í gleymsku. En þannig fór EKKI! Jesús reis upp frá dauðum! Þetta var ekki “plat” eins og krakkar segja stundum, heldur “í alvörunni” . Og það breytir öllu, bæði fyrir þig og mig. Nú vitum við að Jesús lifir og er okkur nálægur öllum stundum. Við höfum ekkert að óttast. Þótt lífsbaráttan geti verið og verði eflaust hörð á köflum, þá vitum við að við eigum sigurinn vísan. Jesús sigraði versta óvininn, dauðann, og þá er ekkert frekar að hræðast. Þess vegna skulum við hrista af okkur allt slen, kvíða og ótta og ganga hugdjörf til móts við framtíðina. Jesús sagði: “Sjá ég er með ykkur alla daga allt til enda veraldar.” Já, hann er sannarlega upprisinn !