Íslenska Kristskirkjan

Þú ert hérna: Forsíða Fræðsla Orð frá prestinum “Ég er alveg að fara yfirum .....”
Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa

“Ég er alveg að fara yfirum .....”

Vonandi getur þú ekki tekið undir þessi orð, en af fréttum fjölmiðla gæti maður haldið að mörgum liði þannig. Samkvæmt upplýsingum frá neyðar-símaþjónustu Rauða krossins hefur þeim fjölgað mikið sem eru við það að skilja og slíta samvistir við maka sinn. Hvernig eigum við að bregðast við öllu álaginu sem hlýst af bankahruninu?  Hér eru nokkur atriði til umhugsunar:

Reyndu að halda ró þinni þótt útlitið sé dökkt.  Tilveran er enn í höndum Guðs. Hann vill þér vel og þér er óhætt að fela honum vandræði þín.
Hvað er það versta sem gæti gerst í þínum aðstæðum?  Ég held að þú áttir þig á því að sú staða hefur enn ekki komið upp. Huggaðu þig með því.
Leitaðu leiðsagnar hjá ráðagóðum vini, ráðgjafa, presti eða öðrum sem aðstoðar fólk í vanda. Ekki burðast ein/einn með vandann. Hugsanlega geta aðrir séð leið þar sem þú sérð enga. Maður getur nefnilega orðið alveg áttavilltur í eigin vanda og kvíða. Ekki loka þig af í erfiðleikunum. Vertu innan um fólk.
Ef þú ert í miklu skuldum, ræddu þá við þann/þá sem þú skuldar og segðu viðkomandi allan sannleikann um stöðu þína. Biddu um gjaldfrest, niðurfellingu skuldarinnar í heild eða að hluta til,  eða vittu hvort hann býður aðra lausn sem getur hjálpað. Ekki bíða og láta dráttarvexti hrannast upp. Reyndu að forðast að sækja um meiri yfirdráttarheimild, losaðu þig frekar við þá sem þú ert með núna.
Margir sem misstu allar eigur sínar í síðustu kreppu (urðu gjaldþrota) tókst að vinna sig upp að nýju með ráðdeild og sparsemi.
Kreppan mun taka enda og þá kemur þitt tækifæri til að rétta við fjárhaginn.
Frumsöfnuðurinn í Jesúsalem varð fyrir ofsókn (af völdum Sáls frá Tarsus) og fólkið varð að yfirgefa eigur sínar og atvinnu og flýja til annarra landa. Hvar var Guð þá? Hann sneri þessu til góðs: fólkið kom sér fyrir á nýjum stöðum og fékk ný tækifæri og ekki síst –það flutti með sér fagnaðarerindið og heiðingjar urðu kristnir.

Þessi gömlu ráð duga best:

  1. Leitaðu ráða hjá Guði í bæn og leiðsagnar í Guðs orði.
  2. Farðu eftir því sem Guð segir þér.
  3. Berðu svör Guðs undir trúaða vini sem hafa langa reynslu af því að heyra frá Guði og hefur farnast vel í lífinu.
  4. Treystu Guði fyrir velferð þinni og fjölskyldu þinnar. Hann hefur áfrom þér til handa sem öll eru til blessunar.
  5. Ekki grípa til örþrifaráða og gera eitthvað í flýti, það er vís leið til að gera alvarleg mistök. Sá sem treystir Drottni er ekki óðlátur, segir í Guðs orði.
  6. Sýndu úthald. Mikil vandamál leysast sjaldnast í einu vetfangi. Guðs orð sýnir að trúarhetjurnar þurftu allar að bíða hjálpar Drottins. Guð vill reyna traust okkar til hans. Þannig vöxum við í trú.  Þar er ekki hægt að sytta sér leið.