Íslenska Kristskirkjan

Þú ert hérna: Forsíða Fræðsla Orð frá prestinum Við krefjumst breytinga!
Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa

Við krefjumst breytinga!

Hverja krefjum við um breytingar? Oftast aðra en okkur sjálf. En ættum við ekki frekar að byrja á sjálfum okkur heldur að krefja aðra um breytingar? Það er erfitt að heimta breytingar hjá öðrum en það ætti að vera auðveldara að fara fram á það við okkur sjálf.  Spurningin snýr því fyrst og fremst að sjálfum mér.  Vil ég breytast og ætla ég að vinna að breytingum í mínu lífi?

Nú eru áramót og tilvalið að nota þau til að fara yfir líf sitt, átta sig á því sem betur má fara og gera raunhæfa áætlun um breytingar. Öll höfum við tilheigingu til að slaka á í trúnni. “Lýður minn hefur stöðuga tilheiging til að snúa við mér bakinu” segir Guð um Ísraelsþjóðina í Orði sínu. Stundum koma tímar árangurs og góðs framtaks, en eitt er víst, aftur og aftur mun sækja í gamla horfið –deyfðina, nema við höldum vöku okkar. Þú hefur eflaust fundið fyrir deyfð í þínu trúarlífi. Ég verð að viðurkenna að ég hef fundið fyrir henni hjá mér. Við afsökum okkur með mikilli vinnu og ytra áreiti, en í reynd stjórnar enginn lífi okkar nema við sjálf og þeir sem við gefum leyfi til að stjórna okkur.  Ég vil sjá meiri andlega grósku í mínu lífi og safnaðarins sem ég starfa í. Til þess að það gerist þarf ég að láta andlega rækt fá forgang í mínu lífi. Söfnuðurinn okkar verður ekki meira lifandi og kröftugri en við sjálf erum. Ef við leggjum ekki rækt við okkar andlega líf, bænina, uppbygginguna í Orðinu og samfélagið við annað kristið fólk, mun okkur fara aftur, svo einfalt er það.

Byrjun nýs árs er tilvalinn tími til að fara yfir líf sitt, iðrast synda og taka sig á. Það ætla ég að gera, en þú? Verum samtaka og samferða í því að endurnýjast í trúnni og sjá safnaðarlífið í kirkjunni okkar endurnýjast. Það gerist ekki nema við sjálf viljum það. Vil ég það? Já. Vilt þú það? Þitt er að svara því. Á svörum okkar mun andleg velferð okkar og safnaðarins okkar byggjast.