Þið hafið eflaust heyrt og lesið að Tommi í Hamborgarabúllunni lét sér vaxa alskegg og hefur verið með það mánuðum saman til að mótmæla háum stýrivöxtum Seðlabankans. Eins fór Úlfar Eysteinsson veitingamaður að. Þeir ætla ekki að raka sig fyrr en stýrivextir Seðlabankans fara niður fyrir 10%. Þetta eru hugsjónamenn sem leggja töluvert á sig fyrir málstaðinn. Dagana 9. – 14. þessa mánaðar ætlar hópur af kristnu fólki úr mörgum kirkjudeildum að fasta og biðja fyrir ríkisstjórn og Alþingi. Þessi hópur hefur komið saman í séra Friðrikskapellu við Vodafonhöllina (Valsheimilið) vikulega í hádeginu á miðvikudögum frá því í fyrrasumar til að biðja fyrir ráðamönnum og ástandinu í þjóðfélaginu. Tveir alþingsmenn hafa komið á bænastundir þessar og eins hefur hópurinn farið niður á palla Alþingis og hlustað á umræður.
Mig langar til að hvetja ykkur sem flest að taka þátt í bæninni, ekki síst næstu viku meðan á föstunni stendur. Allt kristið fólk er velkomið að koma á hádegis-bænastundirnar á miðvikudögum í sr. Friðrikskapellu. Stöndum saman í bæninni sem aldrei fyrr, hvort sem er heima, í kirkjunum eða annars staðar. Öft var þörf, nú er nauðsyn.
Eins og Tommi og Úlfar hafa mánuðum saman lagt á sig hita, svita og kláða vegna mikils skegglúða, ætti okkur ekki að vera vorkunn að koma saman til bæna einn tíma á viku. Látum verkin tala.

