Til þess að geta staðið vörð um heilbrigt líf og gott siðferði fjölskyldna okkar verðum við hin fullorðnu að vera góð fyrirmynd. Börnin okkar þurfa að finna að tilveran er örugg og mikilvægur þáttur í því er að hjónband foreldranna sé sterkt og kærleiksríkt. Þá finna börnin til öryggis sem gefur þeim styrk til að takast á við margvíslegt álag og neikvætt áreiti frá umhverfinu sem flest börn verða fyrir. Undanfarna áratugi hefur tíðni hjónaskilnaða verið há. Við sem erum gift eigum að strengja þess heit að slíta ekki hjónabandið. Snúum þróuninni við og látum hjónabandið endast alla ævi. Og ef við gerum það er miklu minni hætta á að börnin okkar skilji þegar þau síðar eru sjálf komin í hjónaband.
Og þetta á við margt fleira. Hvernig fyrirmynd er ég? Ef börnin mín sjá að ég er kærulaus og leyfi mér eitt og annað sem ég vil ekki að þau geri, þá gef ég misvísandi skilaboð. Börnin sjá í gengum slíkt og það gerir þau óörugg. Nútíminn er svo óstöðugur, hættulegur og siðlaus að við þurfum að skíra það vel fyrir börnunum okkar að margt sem fullorðið fólk gerir, er ekki til fyrirmyndar og þau ættu sjálf að láta ógert –enda látum við foreldrar þeirra það ógert.
Fylgjumst vel með því hvað börnin horfa og hlusta á í sjónvarpinu, á netinu, í bíó eða annars staðar. Spyrjum þau um það. Ræðum svo málin við þau og skýrum fyrir þeim að sumt sé gott og annað vont. Ekki láta þau um að meta það sjálf. Þau hafa ekki þroska til þess. Teljum okkur ekki trú um að með slíku eftirliti séum við “afturhaldssamir” foreldrar og án “víðsýni og umburðarlyndis”. Við eigum ekki að sætta okkur við margt sem þjóðfélagið ber á borð fyrir okkur, það getur beinlínis verið skaðlegt lífi okkar og trú.
Ég má ekki hafa þetta lengra, en ég vil hvetja okkur öll um að halda vöku okkar. Varðveitum heilbrigt og gott kristið heimilislíf. Verum gagnrýnin á það sem fjölmiðlar og aðrir rétta að okkur. Í dag er mikil barátta um hvern einstakling. Hið góða og illa takast á. Förum eftir þessum orðum í Nýja testamentinu: “ Lát ekki hið vonda yfirbuga þig heldur sigra þú illt með góðu.”

