Íslenska Kristskirkjan

Þú ert hérna: Forsíða Fræðsla Orð frá prestinum Hátíðin sem fáir skilja
Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa

Hátíðin sem fáir skilja

„Ha, er hvítasunnan hátíð Heilags anda?“ spyr fólk. „Við héldum að hún væri hátíð ferðamennskunnar, fyrsta almennilega ferðahelgi sumarsins?!“ Já, þannig er það, fólk flest veit ekkert hvað Heilagur andi er. Þetta er hrikaleg staðreynd. Fólk veit ekki að hann er drifkraftur trúarinnar, huggari og leiðbeinandi hinna kristnu. Það er ekki undarlegt þótt áhrifamenn í viðskiptum og stjórnmálum hafi leitt þjóð okkar í ógöngur fyrst þeir þekkja ekki Heilagan anda og hafa enga hugsun á að leita hans og ráðgjafar hans. Afkristnunin hefur skelfilegar afleiðingar, það sjáum við -vonleysi og örvæntingu tuga þúsunda fjölskyldna sem sjá ekki fram úr skuldum og hafa misst nær allt sitt. Ef við sem þjóð hefðum varðveitt trúna og leitað ráða hjá Heilögum anda hefðum við aldrei lent í þessum ógöngu, það vil ég fullyrða.

En ekki dugir að örvænta. Nú er skylda okkar kristinna manna í þessu landi að hefja raust okkar á sem flestum sviðum og kunngjöra þjóðinni hvað til bjargar megi verða: Ráðsályktun Guðs. Hver og einn kristinn maður þarf nú að vera rödd Guðs hvar sem hann er, á heimili, í skóla og á vinnustað. Þegar vandi einstaklinga og þjóðfélagsins eru til umræðu þurfum við að benda á mikilvægi þess að leita Guðs og taka við hjálp hans. Við megum ekki vera feimin, enda ástæðulaust. Málstaður okkar er hinn besti. Notum hverja stund því að dagarnir eru vondir, það sagði postulinn. Þessi orð eru sönn í dag. Ekki fyrirverða þig fyrir fagnaðarerindið því það er kraftur Guðs til hjálpræðis hverjum þeim sem trúir. Þetta var afstaða Páls postula (Róm. 1:16). Nú er tækifæri til sóknar. Þjóðin hrópar eftir lausnum. Glötum ekki þessu mikilvæga tækifæri til að verða sem flestum til blessunar.