Íslenska Kristskirkjan

Þú ert hérna: Forsíða Fræðsla Fræðsluefni David Yonggi Cho um safnaðarvöxt
Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa

David Yonggi Cho um safnaðarvöxt

Yonggi Cho var spurður hvert væri leyndarmálið að baki hins mikla árangurs sem hann hefði náð og birtist í risasöfnuðinum sem hann væri leiðtogi fyrir í Soul í S. Kóreu. Hann svaraði: “Það sem þarf til er:

  1. Markmiðs-sýn (Goal vision) -Presturinn leyfi Heilögum anda að fæða innra með sér mynd eða sýn af þeim söfnuði sem Guð hefur gefið honum löngun til að stofna.

  2. Trúarmark fyrir vöxt safnaðarins. Þetta félst í brennandi þrá eftir að sjá söfnuðinn vaxa fram og setja honum vaxtarmarkmið í trú.

  3. Samfélag Heilags anda. Að Heilagur andi leiði samfélag safnaðarins og að þar sé rúm fyrir starf Andans (smurningu, náðargjafir, opinberanir, body ministry o.þ.h.).

  4. Heimahópar. Söfnuðurinn sé skipulagður sem allsherjar heimahópakerfi. Þar fá leikmennirnir að njóta sín og þar vex fram nærsamfélagið og fólk fær aðhlynniningu, sálusorgun og nýtt fólk kemst til trúar. Hjá okkur í Soul samanstendur hver heimahópur af 5-10 fjölskyldum.”

Auk þessa sagði hann að bænin væri lykillinn að því að þessi fjögur atriði skiluðu árangir. Bæn, bæn og aftur bæn. Sjálfur notar hann mikinn tíma til bænar -hann biður reyndar öllum stundum, mitt í störfum sínum. Bænin er forsenda árangurs í Guðs ríki, segir David Yonggi Cho. -Úr viðtali við Paul Crouch í þættinum “Praise the Lord” á Omega.