Íslenska Kristskirkjan

Þú ert hérna: Forsíða Fræðsla Fræðsluefni Leið til bænar
Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa

Leið til bænar

Ein erfiðasta hindrunin í vegi þess að ná raunverulegri "snertingu" við Guð þegar við biðjum, eru okkar eigin hugsanir. Það geta stundum verið okkar fyrirfram ákveðnu hugmyndir um hvers við þörfnumst eða vandamál og annríki dagsins. Er við hefjum bænastund finnum við okkur þurr og áhugalaus og truflandi hugsanir ráðast á okkur úr öllum áttum. Hugsaðu þér þá að Drottinn standi fyrir framan þig og bíði eftir að eiga viðræður við þig. Hár múr umllykur hann, svo að þú kemst ekki nálægt honum. Hann er þarna, en veggur hugsana, minninga og hugmyndaflugs standa í veginum milli þín og hans. Þarna eru dyr en þú þarft á lykli að halda. Í bæn getur þessi llykill verið ritningarvers sem þú beinir huga þínum að. Þegar þú gefur hugsunum þínum eitthvað til að einbeita sér að, verður andi þinn frjáls og þú getur eins og svifið til Guðs og fundið snertingu hans.

Af því að orð Guðs er lifandi og kröftugt, er mjög gagnlegt að hugleiða það auk þess sem það hægir á okkar eigin hugarflugi. Þannig "rótfestum við orðið í hjarta okkar", leggjum til hliðar gamlar minningar og neikvæðar hugsanir, en hugsum í staðinn um jákvæð loforð Guðs og lærum að þekkja vilja Guðs. Þannig íhugum við eiginleika Jesú, teygum að okkur sannleikann sem gerir okkur frjáls og kennir okkur að "þekkja" hann.

Í þessu sambandi langar mig að vitna í orð Dom Huberts Von Zeller: "Hugleiðsla er bæninni það sem lærdómur er viskunni." Hugleiðsla er í rauninni leið til að ná lengra í bænalífinu. Þetta er lykillinn að nánari bænareynslu með Drottni. Hér á eftir koma tvær tillögur um hugleiðslu með notkun Ritningarinnar að leiðarljósi.. Vertu ekki of fastheldinn á þessar aðferðir, en notaðu þær sem verkfæri eða leiðbeiningu til að hafa hemil á hugsunum þínum á meðan andi þinn er í nánum viðræðum við anda Jesú. Þegar þú finnur fyrir snertingu hans innst í hjarta þínu, þá skaltu fylgja honum og sleppa hjálpargögnunum. Stundum þegar þú byrjar bænastund finnurðu strax fyrir nálægð hans. Hjarta þitt fyllist kærleika og tilbeiðslu. Þá þarftu engan lykil. Hjartadyr þínar eru þá þegar opnar. Á öðrum stundum (og oftast) finnst þér þú vera utan við þig og andlega þurr. Þá er rétti tíminn til að nota lykilinn við að opna dyrnar. (Mundu að það að hugleiða líf Drottins veldur því að þú tekur að líkjast honum meira og meira).

  1. Best er að velja sér ritningarstað áður en bænastund hefst. Hægt er að notfæra sér tillögur úr andaktsbók, eða biblíulestraskrá kirkjuársins. Veldu þinn eigin texta eða byrjaðu á því að lesa yfir guðspjallatexta viðkomandi dags. Sumir lesa ritningarversin kvöldinu áður svo að þau séu þegar í huganum þegar þeir fara að sofa. Veldu þér þægilega bænastellingu.
  2. Byrjaðu bænastundina með lofgjörð, þakkandi Guði fyrir nærveru hans.
  3. Þegar þú "finnur fyrir" nálægð Guðs, flyttu honum þá ritningarversið þitt, eina setningu í senn - hægt , í hugleiðslu og bænaranda. Leitastu ekki eftir að "fá eitthvað út út þessu" fyrir sjálfan þig, né skilja merkinguna, líttu heldur á versið sem kærleiksríka bæn til Drottins. Endurtaktu hverja setningu hægt nokkrum sinnum, stansaðu við og hlustaðu áður en þú heldur áfram. Eitt orð hefur jafnvel svo mikla þýðingu fyrir þig að þú þráir að staldra við þetta eina orð góða stund.
  4. Í hvert sinn sem þér finnst Guð "snerta" þig með boðskap textans, þá stansaðu þar, þangað til þú finnur að hann hefur "haldið áfram". Þá skaltu færa þig yfir í næstu setningu. Það kemur stundum fyrir að Guð vill snerta þig svo djúpt, á svo áhrifaríkan hátt, í gegnum viss ritningarvers, að þú leiðist auðveldlega inn í einlæga bæn. Ef þú héldir áfram, myndir þú fara á undan honum. Hérna verður þú að sleppa lyklinum og fylgja leiðstögn Heilags anda. Mundu, að í bæn er það Guð sem ræður ferðinni. Hann kallar okkur til bæna. Við gefum honum tíma til að tala inn í hjörtu okkar, kenna okkur sína vegu, leiða okkur, lækna og færa inn í kærleiksríka návist og þekkingu sína. Hann verður að ráða ferðinni og stjórna tímanum.
  5. Þegar þú finnur að tími hugleiðslu er liðinn, svaraðu þá Guði á þann hátt sem þér finnst viðeigandi. Þetta er tími ákvarðanatöku o.s.f. (Ef hann hefur talað til þín um að sýna þolinmæði, þá skltu biðja hann að hjálpa þér að verða þolinmóðari framvegis. Ef hann hefur bent þér á fólk sem ekki þekkir Guð, þá skaltu biðja fyrir því, o.s.f.).
  6. Endaðu alltaf bænastund þína með lofgjörð, tilbeiðslu og þakkargjörð, fyrir allt það sem Guð hefur gjört og fyrir nærveru hans.

Guð blessi þig og tíma þinn með honum.