
Kveikjan að bókinni var sú að höfundurinn, Henri J.M. Nouwen, sá fyrir tilviljun eftirprentun af málverki eftir hollenska málarann Rembrandt. Myndin var af persónum fyrrnefndrar sögu Jesú. Nouwen var bergnuminn! Í framhaldi af því fór hann til Sankti Pétursborgar þar sem sjálft málverkið –frummyndin- er geymt og eyddi mörgum dögum í að skoða það og hugleiða efni þess. Afraksturinn var bókin “The Return of the Prodigal Son”.
Höfundurinn Nouwen, segist hafa fundið eitthvað af sjálfum sér í báðum bræðrunum, ekki síst þeim eldri. En svo gerði hann merka uppgökvun. Nú var kominn tími til fyrir hann að líkjast föðurnum! Hann hafði aldrei látið sér detta það í hug. Faðirinn í sögu Jesú og í málverkinu er vitaskuld okkar himneski Faðir –fullur gæsku, mildi, hlýju, kærleika, langlyndis, fyrirgefningar, og ….. já, upptalningin getur verið löng… Þegar Nouwen skrifaði bókina var hann kominn af léttasta skeiði og fann að hann gat þess vegna verið í hlutverki föðurins og sýnt öðrum viðmót hins himneska Föður. Guð vill að við vöxum og verðum feður og mæður –þroskað fólk sem hefur stórt og hlýtt hjarta og getur miðlað blessun til þeirra sem koma særðir af vettvangi veraldarinnar eða hafa hert hjarta sitt “heima” í sinni eigin köldu trúrækni.
Bókin talaði sterkt til mín, ekki síst kaflinn um föðurinn. Guð gefi að ég geti lært eitthvað gott af honum. Ég hvet þig til að útvega þér þessa góðu bók og biðja Guð að nota hana til að snerta hjarta þitt svo að þú getir betur meðtekið kærleika Guðs og miðlað honum til annarra.

