
Höfundur, Julia Duin, blaðamaður.
Útgefandi: Crossland Press, Baltimore, Maryland, USA
Útgáfuár: 2009
Bókin segir frá því hvernig séra Graham Pulkingham, prestur í biskupakirkjunni í Bandaríkjunum, reisti við deyjandi söfnuð, The Church of the Redeemer, í Houston í Texas á dögum náðargjafavakningarinnar. Síðan féll hann í synd og dró marga með sér í fallinu. Söfnuðurinn sem óx hratt undir stjórn séra Grahams varð þekktur um öll Bandaríkin og víðar um heim og var áhrifamikill á vettvangi náðargjafahreyfingarinnar. Vegna syndar sinnar og tvöfalds lífernis séra Grahams fór margt úrskeiðis í söfnuði hans. Hann var giftur og sex barna faðir en gaf sig á vald samkynhneigð og lifði eftir henni í tengslum við aðra karlmenn. Sjálfur missti hann starf sitt og þurfti ásamt fjölskyldu sinni að þola miklar sálarkvalir uns hann að lokum lést fyrir aldur fram af hjartveiki. Bókin er sterk viðvörun til presta, starfsfólks safnaða svo og allra allmennra safnaðarmeðlima að gæta þess að lifa ekki tvöföldu lífi og gefa djöflinum ekki færi á sér.
Höfundur bókarinn frk. Julia Duin skrifar um trúmál hjá dagblaðinu Washington Times. Hún var sjálf þátttakandi í söfnuði séra Grahams í Houston. Í tengslum við ritun bókarinnar tók hún viðtöl við hátt í 200 manns sem tengdust söfnuðinum eða málinu á einn eða annan hátt. Hér er því um frásagnir sjónarvotta að ræða í mörgum tilfellum. Julia kom hingað til lands fyrir allnokkrum árum til að skrifa grein í Charisma magazine um náðargjafahreyfinguna hér á landi og íslenskt kirkjulíf. Þá kynntist ég henni og höfum við skrifast á af síðan þá.
Bókin er mjög mikilvægt innlegg í umræðuna um hrösun kirkjuleiðtoga í Bandaríkjunum á síðust áratugum. Svo virðist sem margir prestar og leiðtogar hafi lifað tvöföldu lífi – verið áberandi og virtir í starfi sínu sem andlegir menn- og jafnframt lifað í óuppgerðum syndum sem rústuðu starfi þeirra og þjónustu. Dæmi um slíka eru sjónvarpstrúboðarnir Jim Bakker og Jimmy Swaggart. Báðir hafa reyndar farið að starfa aftur sem kristnir leiðtogar en orðstír þeirra og starf er ekki nema svipur hjá sjón miðað við það sem áður var. Einnig má nefna Ted Haggard prest í New Life kirkjunni í Colorado Springs. Sjálfur heimsótti ég og kona mín söfnuð hans fyrir nokkrum árum og ræddi ég þá við hann einslega. Það var meðan allt var á í góðu gengi í söfnuði hans – á yfirborðinu. En á sama tíma iðkaði hann samkynhneigt líferni með öðrum karlmönnum og neytti vímuefna. Hann missti starf sitt sem prestur og söfnuður hans varð fyrir miklu áfalli. Paul Crouch hjá Tritnity Broadcasting Network hefur einnig legið undir ámæli fyrir kynferðisafglöp. Dæmin eru fleiri og allt er þetta ömurlegt. Bók Juliu Duin er alvarlegt áminnig um að við öll, ekki bara prestar, gætum okkar að lifa hreinu lífi og í ljósinu svo að óvinurinn nái ekki fótfestu í lífi okkar og takist að fella okkur og valda tjóni í Guðs ríki.
Auðveldast er að eignast bókina með því að panta hana hjá vefversluninni Amazon.com

