…söng Þorgeir Ástvaldsson forðum og sló í gegn. Að fara í frí er ekki alltaf einfalt mál. Sumir komast tæpast í frí vegna mikillar vinnu, aðrir eiga ekkert frí inni, sumir þurfa að sinna veikum eða ellihrumum ættingjum, og aðrir hafa ekki efni á fríi o.s.f. En flestir komast þó í frí, sem betur fer. Þessa dagana eru þó margir í “fríi” gegn eigin vilja –eru atvinnulausir. Sorglegt. En þó maður sé kominn í frí er maður samt ekki kominn í frí, a.m.k. margir. Þeir eru enn “í vinnunni” marga daga eftir að fríið er byrjað. Hugurinn er við verkefni vinnunnar og þeir eiga erfitt með að ýta þeim til hliðar. Svo er það líka eitt sem getur haft áhrif: maður er svo vanur því að vera “að gera eitthvað” að maður kann ekki við að vera í fríi og “gera ekki neitt”. Þannig var með mig, árum saman. En svona hugsunarhætti þarf maður að hafna. Allir þurfa á fríi og tilbreytingu á halda. Þegar maður er í fríi á maður að vera í fríi og njóta þess.