Hverja krefjum við um breytingar? Oftast aðra en okkur sjálf. En ættum við ekki frekar að byrja á sjálfum okkur heldur að krefja aðra um breytingar? Það er erfitt að heimta breytingar hjá öðrum en það ætti að vera auðveldara að fara fram á það við okkur sjálf. Spurningin snýr því fyrst og fremst að sjálfum mér. Vil ég breytast og ætla ég að vinna að breytingum í mínu lífi?
Fræðsla
Fulltrúar frá 8 ólíkum íslenskum söfnuðum, samfélögum og/eða samtökum fóru til Genfar nú í byrjun desember til að sækja ráðstefnu sem kallast Geneva Leadership Forum. Við vorum frá Veginum, SD Aðventistum, Salti, Þjóðkirkjunni, Ísl. Kristskirkjunni, Fíladelfíu, Aglow og Sambandi ísl. kristniboðsfélaga. Vinir okkar frá Campus Crusade for Christ í Sviss buðu okkur að heimsækja þau og taka þátt í þessari ráðstefnu, en hana sóttu leiðtogar úr nær allri Evrópu, bæði prestar og forystufólk og fulltrúar fyrir ýmsar greinar þjóðfélagsins. Um þessar mundir eru 500 ár frá fæðingu siðbótarmannsins Jóhans Kalvins og var það tækifæri notað til að halda ráðstefnuna, en Genf var einmitt meginstarfsvettvangur Kalvins.