Hefur þú nokkurn tíma hugsað um það hvernig tilveran var áður en Guð skapaði allt sem til er. Í upphafi var Guð einn og ekkert annað. Hvernig skyldi það hafa verið? Það er erfitt að gera sér það í hugarlund. Það hlýtur að hafa verið þannig að Guð var allt í öllu. Tilveran öll var Guð og Guð var allt. Og svo tók hann að skapa. Hebreska orðið sem notað er í 1. Mósebók um það þegar Guð skapar er “bara” og þýðir að búa eitthvað til úr engu. Ég álít að Guð hafi ummyndað hluta orku sinnar í efni. Þetta efni þandist út og varð hinn sýnilegi og mælanlegi efnisheimur. En Guð skapaði líka andlegar verur, engla og hið andlega svið þar sem þeir eru og starfa.
Fræðsla