Páskarnir breyttu öllu
Ef Jesús hefði ekki risið upp frá dauðum hefði allt verið búið. Þá hefðu lærisveinarnir að öllum líkindum farið aftur norður til Galíleu og snúið sér að fyrri störfum. Sagan um Jesú, kraftaverkin og allt hitt hefðu smám saman fallið í gleymsku. En þannig fór EKKI! Jesús reis upp frá dauðum! Þetta var ekki “plat” eins og krakkar segja stundum, heldur “í alvörunni” .
Nánar...
“Ég er alveg að fara yfirum .....”Vonandi getur þú ekki tekið undir þessi orð, en af fréttum fjölmiðla gæti maður haldið að mörgum liði þannig. Samkvæmt upplýsingum frá neyðar-símaþjónustu Rauða krossins hefur þeim fjölgað mikið sem eru við það að skilja og slíta samvistir við maka sinn. Hvernig eigum við að bregðast við öllu álaginu sem hlýst af bankahruninu? Hér eru nokkur atriði til umhugsunar: Já eða nei við Ice-save lögunum?Hvað skyldi Guð vilja að ég kjósi? Er honum kannski alveg sama? Nei, örugglega ekki. Guð er aldrei hlutlaus í málum sem varða réttlæti og velferð fólks. |
| JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL |