Íslenska Kristskirkjan

Þú ert hérna: Forsíða Fræðsla

Fræðsla

“Ég fer í fríið, ég fer í fríið…”

…söng Þorgeir Ástvaldsson forðum og sló í gegn. Að fara í frí er ekki alltaf einfalt mál. Sumir komast tæpast í frí vegna mikillar vinnu, aðrir eiga ekkert frí inni, sumir þurfa að sinna veikum eða ellihrumum ættingjum, og aðrir hafa ekki efni á fríi o.s.f.  En flestir komast þó í frí, sem betur fer. Þessa dagana eru þó margir í “fríi” gegn eigin vilja –eru atvinnulausir. Sorglegt.  En þó maður sé kominn í frí er maður samt ekki kominn í frí, a.m.k. margir. Þeir eru enn “í vinnunni” marga daga eftir að fríið er byrjað. Hugurinn er við verkefni vinnunnar og þeir eiga erfitt með að ýta þeim til hliðar.  Svo er það líka eitt sem getur haft áhrif: maður er svo vanur því að vera “að gera eitthvað” að maður kann ekki við að vera í fríi og “gera ekki neitt”. Þannig var með mig, árum saman. En svona hugsunarhætti þarf maður að hafna. Allir þurfa á fríi og tilbreytingu á halda. Þegar maður er í fríi á maður að vera í fríi og njóta þess.

Nánar...
 

Nokkur ráð í þrengingum

Nánar...
 

Sorgardagur hjá þjóð og kirkju

Sunnudaginn 27. júní taka ný hjúskaparlög gildi hér á landi. Þau eru byltingarkennd: Í þessum nýju lögum er ekki rætt um karl og konu sem aðila að hjúskapnum, heldur einstaklinga. Áherslan á kynferði er farin. Nú getur karl gifst karli og kona konu. Þetta er vitni um mjög alvarlega siðferðlega hnignun þjóðfélags okkar, já, nánast ótrúlega. Hver hefði látið sér detta í hug, þegar umfjöllunin um svokölluð réttindi samkynhneigðra var að fara af stað fyrir alvöru, á sjöunda áratug síðustu aldara, að árið 2010 gætu samkynhneigðir gifst örðum sama kyns og orðið hjón og hátíðir yrðu haldnar í kirkjum af því tilefni !!

Nánar...
 
JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL