Íslenska Kristskirkjan

Þú ert hérna: Forsíða Fræðsla Til umhugsunar Habakkuk hafði rétt fyrir sér!
Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa

Habakkuk hafði rétt fyrir sér!

Það tekur neikvæðar hugsanir styttri tíma en það tekur þig að lesa þessa setningu að hafa áhrif á hvernig þeim líður sem verður upptekinn við slíkar hugsanir. Það er hægt að finna sér margar ástæður til þess að verða döpur og niðurdregin. Við verðum fyrir áföllum í lífinu, það reynir oft á. T.d. höfum við hjónin á innan við mánuði klesst bílinn okkar tvisvar sinnum. Þegar þessi orð eru skrifuð ligg ég heima veikur af kvefi. Mörg verkefni hjá okkur hafa orðið að sitja á hakanum vegna þess að það er einfaldlega ekki nægur tími til að ljúka öllu sem þarf að gera. Svona mætti telja áfram. Þegar svona er ástatt er auðvelt að verða pirraður og neikvæður, kenna öðrum um, ásaka sjálfan sig, kvíða framtíðinni o.s.frv. Slík viðbrögð eru "eðlileg", þ.e. þetta eru mannleg fyrstu-viðbrögð.

Það er hinsvega hægt að bregðast öðruvísi við. Við getum sjálf ákveðið hvaða áhrif vandamál og áföll hafa á okkur með því að stýra því hvernig við bregðumst við þeim. Einnig er mikilvægt að setja vandamál okkar í rétt samhengi:

  1. Hver einasta mannvera glímir við vandamál. Oft höldum við að til sé fólk sem lifir lífi sem er algerlega laust við vandamál. Sannleikurinn er hinsvegar sá að slíkt fólk er ekki til, og ef einhver heldur að hann lifi slíku lífi þá hefur honum yfirsést eitthvað!! Allir glíma við vandamál og oft helst í hendur að fólk sem nýtur velgengi fær fleiri verkefni að glíma við og þar með fleiri vandamál. Það eru allir að kljást við vandamál. Algengt er að hugsa sem svo: "Ef ég aðeins gæti leyst þetta vandamál þá gæti ég orðið hamingjusamur(söm)", en sannleikurinn er sá að í kjölfar eins vandamáls kemur yfirleitt annað áður en langt um líður. Það er hlutverk okkar mannfólksins að glíma við vandamál og þess vegna skiptir öllu máli að læra að bregðast við vandamálum og verða fær í að leysa þau! Sættu þig við að vandamálin koma, brettu upp ermarnar og taktu til hendinni.
  2. Vandamál vara ekki endalaust. Allar skúrir styttir upp um síðir. Öll fjöll hafa tind, allir dalir taka enda. Ekki gera þá skyssu að halda að öllu sé lokið þó að tiltekið áfall eða vandamál hafi komið upp. Á meðan að þú getur hugsað heila hugsun hefur þú ótal möguleika til að bæta stöðuna. Mundu a.m.k. þetta: Engin vandamál lifa að eilífu en þú munt lifa að eilífu ef þú hefur játast Jesú Kristi!
  3. Í öllum vandamálum felst eitthvað jákvætt. Það eru tvær hliðar á öllum málum. Það sem er vandamál fyrir einhvern getur verið mjög jákvætt fyrir einhvern annan. Til dæmis starfar fjöldi fólks við það að sprauta og rétta bíla sem hafa lent í árekstri. Það er "vandamál" að lenda í árekstri, en ein af hinni hliðinni er að það fær einhver vinnu við að gera við bílinn. Ekki vera svo upptekinn neikvæðum hliðum þíns vandamáls að þú sjáir ekki hvað gott getur komið útúr því.
  4. Sérhvert vandamál mun breyta þér. Ekkert vandamál sem við tökumst á við skilur við okkur án þess að við höfum orðið fyrir áhrifum af því. Viðbrögð þín við vandamálinu ráða hinsvegar miklu um hvort áhrif þess á þig verða til góðs eða til slæms. Mannstu eftir sögunni sem Jesús sagði um synina tvo. ( Sjá Lúk.15:11 ) Yngri sonurinn bað um að fá arf sinn greiddann út. Því næst hélt hann í annað land þar sem hann sóaði öllum peningunum í óhófsömum lifnaði. Hann endaði sem svínahirðir. Þá langaði hann að seðja sig á drafinu er svínin átu en enginn gaf honum. Hann var sannarlega í vanda staddur. Hann hefði getað brugðist við vandanum með því að halda í stoltið, hann hafði ætlað að bjarga sér á eigin spýtur og það skildi hann gera fram í rauðan dauðann! En eins og segir í textanum: ".. nú kom hann til sjálfs síns". Hann ákvað að leggja spilin á borðið fram fyrir föðurinn sinn og beygja stolt sitt. Sá vandi sem hann var í var vissulega afleiðing af hans eigin klúðri en hvernig hann brást við vandanum hafði veruleg áhrif á hann til góðs. Þetta er það dýrmæta sem við getum fengið útúr sérhverju vandamáli, ef við höldum rétt á spöðunum getur það breytt okkur til góðs!


Ef þú hefur játast Jesú Kristi þá er Guð faðir þinn og þú ert samarfi Krists. ( Róm 8:17 ) Þú þjáist fyrir og með Kristi, en einnig að þú erfir með Kristi! Hugsaðu um það! Guð hefur áætlun með líf þitt og ef þú fylgir honum í gegnum þykkt og þunnt þá mun hann gera eitthvað stórkostlegt úr lífi þínu. Það eru margir fletir á öllum vandamálum, mundu að með réttum viðbrögðum munu vandamálin breyta þér til góðs!

Að lokum þetta: Ekkert er nýtt undir sólinni. Mannkynið hefur alltaf verið að kljást við vandamál. Spádómsbók Habakkuk var rituð u.þ.b. 600 árum f.k. Í þessari gömlu bók standa þessi orð í kafla 3 versum númer 17 og 18:

Þótt fíkjutréð blómgist ekki og víntrén beri engan ávöxt, þótt gróði olíutrésins bregðist og akurlöndin gefi enga fæðu, þótt sauðfé hverfi úr réttinni og engin naut verði eftir í nautahúsunum, þá skal ég þó gleðjast í Drottni, fagna yfir Guði hjálpræðis míns.

Höldum áfram að lofa Guð þrátt fyrir að vandamálin komi og fari.

Ef þú ert í vanda staddur og sérð enga leið út hafðu þá samband við skrifstofu Íslensku Kristskirkjunnar eða höfund þessarar greinar.

Guð blessi þig og leiði á göngunni með honum!

Við ritun þessarar greinar var að hluta stuðst við kafla úr bókinni "Tough times never last but tough people do!" eftir Robert H. Schuller