Matteusarguðspjall 6:5-15
5Og þegar þér biðjist fyrir, þá verið ekki eins og hræsnararnir. Þeir vilja helst standa og biðjast fyrir í samkundum og á gatnamótum, til þess að menn sjái þá. Sannlega segi ég yður, þeir hafa tekið út laun sín. 6En nær þú biðst fyrir, skaltu ganga inn í herbergi þitt, loka dyrunum og biðja föður þinn, sem er í leynum. Faðir þinn, sem sér í leynum, mun umbuna þér.
7Þegar þér biðjist fyrir, skuluð þér ekki fara með fánýta mælgi að hætti heiðingja. Þeir hyggja, að þeir verði bænheyrðir fyrir mælgi sína. 8Líkist þeim ekki. Faðir yðar veit, hvers þér þurfið, áður en þér biðjið hann. 9En þannig skuluð þér biðja:
Faðir vor, þú sem ert á himnum.
Helgist þitt nafn,
10 til komi þitt ríki,
verði þinn vilji, svo á jörðu sem á himni.
11 Gef oss í dag vort daglegt brauð.
12 Fyrirgef oss vorar skuldir,
svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum.
13 Og eigi leið þú oss í freistni, heldur frelsa oss frá illu.
[Því að þitt er ríkið, mátturinn og dýrðin að eilífu, amen.]
14Ef þér fyrirgefið mönnum misgjörðir þeirra, þá mun og faðir yðar himneskur fyrirgefa yður. 15En ef þér fyrirgefið ekki öðrum, mun faðir yðar ekki heldur fyrirgefa misgjörðir yðar.
Besta leiðin til að læra eitthvað vel, er að læra það af sérfræðingi. Ef við viljum læra að biðja, þá þurfum við leiðbeiningar frá mesta sérfræðingi sögunnar - Jesú Kristi.
Jesús kenndi lærisveinum sínum hvernig ætti að biðja og gerði ráð fyrir því að þeir myndu gera það, vegna þess að þrisvar sinnum sagði hann, "Þegar þið biðjið" (vers 5-7). Og mjög augljóslega gerði hann ráð fyrir að þeir gerðu það daglega "Gef oss í dag vort daglegt brauð" (vers 11).
En hvernig áttu þeir að biðja? Í þessum kafla leiðbeinir Jesús okkur, og gefur okkur fjögur ómetanleg dæmi.
Einlægni (vers 5)
Hann segir:
5Og þegar þér biðjist fyrir, þá verið ekki eins og hræsnararnir. Þeir vilja helst standa og biðjast fyrir í samkundum og á gatnamótum, til þess að menn sjái þá. Sannlega segi ég yður, þeir hafa tekið út laun sín.
Jesús er ekki að gagnrýna lofgjörð eða bæn á almannafæri, heldur er hann að vara við röngum ástæðum og hvötum til að gera það. Þegar fólk sækist eftir hóli frá öðrum vegna þess hve andleg þau eru. Ef við biðjum aðeins til að fá viðurkenningu frá öðrum, þá er það einmitt það sem við fáum. Við erum hræsnarar vegna þess að við erum að þykjast vera eitthvað sem við erum ekki. Við erum ekki einlæg. Rétti hvatinn fyrir bæn á að vera þrá okkar til að hafa samband við föður okkar á himnum.
Launung (vers 6)
Jesús segir:
6En nær þú biðst fyrir, skaltu ganga inn í herbergi þitt, loka dyrunum og biðja föður þinn, sem er í leynum. Faðir þinn, sem sér í leynum, mun umbuna þér.
Jesús hvetur okkur til að vera ein með Guði á afviknum stað. Án efa er stór ástæða þess að þar er ekkert sem truflar okkur. Í daglegu lífi eru í raun aðeins einn tími dagsins þar sem við fáum raunverulegan frið, og það er snemma morguns, áður en börnin vakna og síminn byrjar að hringja. Hérna er Jesús þó örugglega frekar að hugsa um sýndarmennsku, frekar en truflun. Það að "ganga inn í herbergi sitt" er myndræn leið til að segja okkur að við eigum að koma okkur úr augsýn aðdáenda, til að geta verið einlæg í bæn okkar og ekki haft hugann við að ganga í augun á öðrum.
Gríska orðið yfir "herbergi" þýðir í raun "innra herbergi" sem var einnig herbergi þar sem auðæfi voru gjarnan geymd. Það er þar sem: "Faðir þinn, sem sér í leynum, mun umbuna þér." (vers 6)
Ef við leitumst eftir nánum kynnum við Guð, þá verður það umbun okkar. Við munum upplifa kærleika hans í garð okkar og við fáum kærleika í garð annara.
Okkur mun öðlast það að losna við sekt, byrði okkar og vandamál og finna frið sem færir okkur skilning. Okkur mun hlotnast ný sýn á lífið, rétt eins og við byrjum að sjá lífið frá sjónarhóli Guðs. Við munum heyra röddu hans og fá leiðbeiningar um hvernig við eigum að lifa lífinu. Við fáum að upplifa bænasvör og okkur hlotnast kraftur um leið og við fyllumst af Heilögum anda sem Guð hefur gefið okkur.
Einfaldleiki (vers 7-8)
7Þegar þér biðjist fyrir, skuluð þér ekki fara með fánýta mælgi að hætti heiðingja. Þeir hyggja, að þeir verði bænheyrðir fyrir mælgi sína. 8Líkist þeim ekki. Faðir yðar veit, hvers þér þurfið, áður en þér biðjið hann.
Heiðingjarnir höfðu nokkurskonar stærfræðilegan þankagang til bænarinnar, þannig að því lengur sem þeir báðu, þeim mun líklegra var að guðirnir heyrðu í þeim. Jesús sagði að það væri ekki lengdin sem skipti máli, heldur einlægni hennar; gæði frekar en magn. Hann var við það að kenna þeim bæn sem innihélt aðeins 57 grísk orð og var hægt að fara með á innan við hálfri mínútu.
Jesús var ekki á móti endurtekningum í bænum en hann var á móti hugsunarlausum endurtekningum. Vissulega kenndi hann lærisveinum sínum að vera þolgóðir í bænum sínum, að halda áfram að biðja, að halda áfram að leita, að halda áfram að knýja á.
Í Getsemane garðinum endurtók Jesús sjálfur bæn sína þrisvar sinnum. En hvorki bæn hans né það sem hann hafði kennt lærisveinum sínum var hugsunarlaus endurtekning sem var aðeins ætluð til að ganga í augun á Guði fyrir það hve löng eða falleg hún var. Jesús ákallaði Faðir sinn á himnum af angist í kringumstæðum sínum. Þannig, þegar við erum í slíkri aðstöðu getum við ekki annað en kallað endurtekið á hjálp til Guðs, og beðið þess að hann svari bænum okkar.
Jesús bendir einnig á að við þurfum ekki að endurtaka hlutina eins og til að minna Guð á aðstæður okkar, því "Faðir yðar veit, hvers þér þurfið, áður en þér biðjið hann." Þess í stað veitir Guð okkur þau forréttindi að vera hluti af áætlun hans. Þannig eru bænir okkar, okkur til hagsbóta, en ekki honum.
Uppbygging (vers 9-16)
Jesús heldur áfram að gefa lærisveinum sínum fyrirmynd að bæninni. Þetta á ekki að vera eina fyrirmyndin, en þessi er sú sem er kannski sú stysta og fágaðasta. Hún nær yfir allt sem við þörfnumst og hún á við hvar sem við erum stödd í heiminum. Þarna er allt sem við gætum beðið Guð. Það sem er mikilvægast er að hún er einföld beiðni til Guðs. Tilbeiðsla, lof og þakkargjörð eru afar mikilvæg en við megum ekki líta á beiðni sem lægsta form bænarinnar.
Faðir vor, þú sem ert á himnum.
Bænin byrjar á samantekt á því hvern við erum að ávarpa. Næstum örugglega kenndi Jesús lærisveinum sínum í upphafi að biðja á Aramísku. Orðið sem hann hefur notað þar yfir Faðir var "Abba" sem myndi frekar útleggjast sem "Pabbi" óformlegra og kannski einlægara. Einnig er ástæða til að benda á að þrátt fyrir að Jesús segir okkur að fara afsíðis og biðja í einrúmi, þá ávarpar hann Guð fyrir okkur, ekki sig. Þarna er megin munur og sýnir svo ekki verður um villst að hann segir að við erum hluti af fjölskyldu Guðs, þar sem við erum að biðja með mörgum öðrum.
Helgist þitt nafn,
Nafn Drottins þýðir opinberun þess sem hann er. Okkur ætti að vera það afar hugleikið að nafn Guðs sé heiðrað og fyrir því borin virðing.
til komi þitt ríki,
Við þörfnumst Jesús. Þegar við biðjum þess að ríki hans komi, erum við að biðja þess að hann komi með reglu sína og stjórn til að breyta okkur. Breyta okkur og landinu okkar. Biðjum um að ríki Guðs komi í hverjar þær aðstæður sem okkur er hugleikið, hvort sem það er eitthvað persónulegt eða einhverju í kringum okkur, eins og landi og þjóð.
verði þinn vilji, svo á jörðu sem á himni.
Þetta er ekki bæn um að gefa eftir sinn eigin vilja, heldur miklu frekar þrá til að sjá vilja Guðs verða hér á jörð. Að fá að þekkja fyrirætlanir hans og vilja með líf okkar. Við þurfum að þekkja vilja Guðs með líf okkar hvort sem það er í stórum málum eins og hjónabandi eða starfsferli eða bara smáatriðum lífs okkar á hverjum degi.
Gef oss í dag vort daglegt brauð.
Jesús kennir okkur einnig að biðja fyrir grunnþörfum okkar. Ekkert er of lítið til að biðja um. Daglegt brauð þarf heldur ekki bara að þýða matur, heldur grunnþarfir okkar almennt, andlegar sem og líkamlegar.
Fyrirgef oss vorar skuldir, svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum.
Jesús leggur sérstaka áherslu á þetta og endurtekur þessi orð í versum 14 og 15: "14Ef þér fyrirgefið mönnum misgjörðir þeirra, þá mun og faðir yðar himneskur fyrirgefa yður. 15En ef þér fyrirgefið ekki öðrum, mun faðir yðar ekki heldur fyrirgefa misgjörðir yðar." Það er samhengi milli þess að fyrirgefa öðrum og að hljóta fyrirgefningu. Við ávinnum okkur ekki fyrirgefningu með því að fyrirgefa öðrum, en það eru merki þess að við hljótum fyrirgefningu. Daglega þurfum við á fyrirgefningu að halda og daglega þurfum við að fyrirgefa
Og eigi leið þú oss í freistni, heldur frelsa oss frá illu.
Orðið sem notað er í frumtextanun yfir freistni er bæði hægt að nota yfir freistni og prófstein. Guð freistar okkur ekki með illu (Jakobsbréf 1:13 "Enginn má segja, er hann verður fyrir freistingu: "Guð freistar mín." Guð getur eigi orðið fyrir freistingu af hinu illa, enda freistar hann sjálfur einskis manns."). Á hinn boginn getur hann stjórnað hve berskjölduð við erum við freistingum frá hinum illa og sjáum við þess glögg dæmi í Jobsbók. Hérna erum við því í raun að biðja þess að Guð gefi okkur það að bregðast ekki í því prófi sem fyrir okkur er lagt. Við þurfum öll að takast á við freistingar og við þurfum kraft Guðs og vernd til að standast þær. Þetta er góður staður til að biðja Guð um að hann fylli okkur af sínum Heilaga anda og búi okkur undir átök dagsins sem framundan er.
Þýtt og endursagt úr ellefta kafla bókarinnar Challenging Lifestyle eftir Nicky Gumbel sem gefin var út af Kingsway Publication 1996

