Íslenska Kristskirkjan

Þú ert hérna: Forsíða Fræðsla Til umhugsunar Er gagnrýni "mögl" ?
Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa

Er gagnrýni "mögl" ?

Er gagnrýni nokkurn tímann til góðs? Getur verið að þetta sé misskilið hugtak á Íslandi? Er möguleiki á því að gagnrýni sé notuð til þess að rífa niður í stað þess að byggja upp? Með gagnrýni á jú að rýna til gagns en ekki ógagns. Það er tilhneiging til þess að benda sífellt á það sem miður hefur farið og neikvætt er. Það er einblínt á neikvæðu hliðarnar í stað þess að benda á það jákvæða, og benda óbeint á það sem aflaga hefur farið. 

Maður getur ekki verið að rífa niður á sama tíma og verið er að byggja upp. Það gengur ekki að byggja hús og rífa það jafnharðan niður. Ef þú ert að reisa hús og einhver kemur og rífur niður það sem þú byggðir, þá kallast það skemmdarverk. Margir rífa aldrei niður, þeir byggja alltaf upp, byggja ný hús. Við hinsvegar fjarlægjum eitthvað sem ekkert gagn er að lengur, eitthvað sem er ónýtt, s.s. gömul hús, gamlar byggingar, en ef það er gott þá byggjum við það upp, endurbætum og jafnvel umbreytum. 

Þannig á líf okkar einnig að vera. Ýtum því til hliðar sem er ónýtt og úr sér gengið. Byggjum nýtt, umbreytumst og endurnýjumst. Það er það sem gerist á göngunni með Guði. Við byggjumst upp á jákvæðu orði Drottins. Umbreytumst og endurnýjumst, bæði í hugsun og verki, með því að tileinka okkur kærleiksríkt og jákvætt hugarfar Jesú Krists. Fjarlægjum úreltar athafnir og neikvæðar, niðurbrjótandi hugsanir.

"Óréttmæt gagnrýni er oft dulbúið hrós"! Það er oft stutt í öfundina og þegar við gerum eitthvað sem aðra hefur dreymt eða mundi langa til að gera verðum við oft á tíðum fyrir óréttmætri gagnrýni. Það að verða fyrir gagnrýni þarf ekki að vera vegna þess að þér hafi mistekist eða að þú hafir opinberað einhverja ímyndaða fávisku þína. Nei, miklu heldur það að þú hafir þorað að skera þig úr, þú hafðir kjark til að taka af skarið, hafðir kjark til að tjá þig. Þetta er það sem allir þrá en margir gera ekki. Óttinn heldur aftur af mörgum einstaklingum og þeir fyllast jafnvel öfund og afbrýðisemi. Láttu það samt ekki hindra þig í að vaxa og ná árangri. Hver og einn verður að taka ábyrgð á eigin tilfinningum. Mundu að þú kemst aldrei að því hvað þú í raun getur fyrr en þú hefur reynt. Hvernig getur maður fundið út hvað maður kann, veit eða skilur ef maður hefur aldrei reynt? Til þess að finna út hvaða hæfileika þú hefur, þarftu að reyna. Til þess að finna út hvað þú getur og getur ekki, þá þarftu að aðhafast eitthvað, framkvæma. Og það mun koma þér á óvart hvað þú ert fær um. Það er engin hætta á að þér mistakist, þú færist eingöngu nær markinu með hverri tilraun. Þú lærir betur að þekkja takmörk þín og vanmátt, þannig kemstu að því hvar “skórinn kreppir að” og þú færð tækifæri á því að laga það, efla það svið sem er ábótavant. Þetta er eins og barn sem sér framandi mat og á að smakka hann í fyrsta skiptið. Það segir “ég borða ekki svona”! En þegar það hefur prófað þá vill það kannski ekkert annað. Láttu ekki óttan við almenningsálitið og neikvæða gagnrýni draga úr þér kjarkinn. Biddu Guð um að vera með þér og þér verður ekkert um megn. Hann bendir þér ekki á mistök þín. Hann byggir innra með þér sterka sjálfsmynd og persónuþroska á jákvæðum grunni; ORÐI GUÐS!

Eitt af grundvallaratriðunum er að umgangast fólk sem þú vilt líkjast. Fólk sem þú vilt eiga samfélag við. Fólk sem þú getur treyst fyrir draumum þínum, hversu stórir sem þeir eru. Fólk sem uppörvar þig og hvetur. Jákvætt, bjartsýnt fólk. Það getur miklu frekar bætt í hugmynd þína, aukið innblásturinn, bent þér á leiðir að markinu.

Eitt er það sem hindrar okkur hvað mest í því að taka á móti blessunum í líf okkar og það er möglið. Við möglum þegar við segjumst ekki geta eitthvað. Þegar við segjumst ekki kunna, vita eða skilja. Þá erum við að mögla, gera lítið úr okkur sjálfum og tölum neikvæða hluti inn í líf okkar. Segjum heldur; “hvernig get ég lært þetta, hvernig get ég aflað mér meiri þekkingar, hvað þarf ég að gera til þess að vera fær um að skilja ákveðna hluti.” Með því að mögla erum við að setja upp hindranir í eigin lífi.

En hvað er mögl? Það er ekkert annað en neikvæð játning. Kvartanir, gagnrýni aðfinnslur, baktal. Allt þetta flokkast undir mögl og meira til. Í Biblíunni er kveðið skýrt á um þetta, m.a. í 1. Kor. 5 – "Lastmáll-sá sem slúðrar blótar og baktalar". Þannig er tungan, lítil innskot, hárbeittar athugasemdir, kaldhæðni og blótsyrði, sem kveikja að lokum óslökkvandi elda haturs, styrjalda og óvildar. Sambönd leggjast í rúst og ekkert verður eftir nema kvöl. Og Guð ætlast til að við tökum á því af festu og aga. Jak. 3: 1-11.

Fólk möglar við kaffikönnuna, gegn vinnustaðnum, gegn yfirmanninum, og kvartar svo yfir því að fá ekki stöðuhækkun. Það möglar gegn prédikaranum og Orði Guðs og undrast að börnin þeirra meðtaki ekki fagnaðarerindið. Jafnvel furðar sig á því að það sjálft nái ekki árangri í Guðsríkinu. Ég held að þetta sé ein af höfuðorsökum þess að fólk nær ekki að nýta eiginleika sína til fullnustu. Mögl tortímir karlmennskuímyndinni, eyðir góðum fyrirmyndum og slævir ábyrgðartilfinningu fólks. Menn og konur eigra um í eyðimörkinni og sjá ekki fyrirheitna landið sem Drottin hefur fyrirbúið okkur. Ég þekki þetta sjálfur af eigin raun. Ef ég hefði fengið 10 krónur í hvert skipti sem ég möglaði þá væri ég milljónamæringur í dag og sá sem hefði reitt peninginn af hendi væri orðinn öreigi. Kannski er þetta svolítið ýkt, en möglið er allstaðar í kringum okkur. Fjölmiðlar, ljósvakamiðlar, slúðurblöð, stjórnmálamenn og aðrir forystumenn, jafnvel söfnuðir mögla. Neikvæðar fréttir eru algengari en jákvæðar. Slúðurblöð færa okkur neikvæðar hliðar á fólki og mikið er um baktal. Stjórnmálamenn níða hver af öðrum skóinn, forystumenn gera oft á tíðum lítið úr verkum annarra og mæta fólki með yfirlæti og hroka. Sjónvarp þarf vart að tala um. Og lýðurinn dansar með. 

AÐ LOKUM ÞETTA; Ef við viljum breytingu inn í líf okkar þá verðum við að byrja á okkur sjálfum. Vilt þú sjá breytingu í þínu lífi? Breytingin hefst hjá þér! Vilt þú verða kærleiksrík og jákvæð manneskja sem hefur góð og uppbyggileg áhrif á lífið og tilveruna, í stað þess að taka þátt í “möglinu”; baktali, aðfinnslum, kvörtunum og neikvæðu tali við sjálfan sig. Byrjaðu strax í dag, á þessari stundu. Taktu ákvörðun um að snúa við blaðinu. Segðu niðurbrjótandi öflum stríð á hendur og snúðu þér til Guðs í heitri bæn. Iðrastu synda þinna og biddu Jesú Krist um fyrirgefningu. Viðurkenndu vanmátt þinn sem syndugrar persónu og Drottin mun hægt og rólega byggja þig upp. Með Guðs hjálp og fyrir náð Hans og miskunn öðlastu frelsi. Drottin getur leyst þig úr hvaða fjötrum sem er en fyrsta skrefið til bata er IÐRUN og FYRIRGEFNING. 

Drottinn, viltu senda mér þinn Heilaga Anda og fylla mig á þessari stundu. Viltu taka þér varanlegan bústað í hjarta mínu og huga frá og með deginum í dag. Vilta hreinsa mig af öllu íllu. Hreinsa mig af neikvæðni, depurð og bölsýni. Gefðu mér gleði, sól og hlýju í hjarta, KÆRLEIKA. Komdu með ljós í myrkviði hugans og ró. Takk Drottinn fyrir bænheyrslu þína. Takk fyrir að endurnýja mig og byggja mig upp.

"En þú Drottinn, ert hlífiskjöldur minn, þú ert sæmd mín og lætur mig bera höfuð mitt hátt" Sálm. 3:4.

Amen!