Íslenska Kristskirkjan

Þú ert hérna: Forsíða Fræðsla Til umhugsunar Svarar Guð bænum?
Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa

Svarar Guð bænum?

JÁ! - en alveg örugglega ekki alltaf eins og við hefðum helst óskað okkur...

JÁ! - en alveg örugglega ekki alltaf eins og við hefðum helst óskað okkur...

 

Ég bað Guð að taka burt venjur mínar.
Guð sagði nei.
Ég á ekki að taka þær burt, heldur átt þú að láta af þeim

Ég bað Guð að gefa mér þolinmæði.
Guð sagði nei.
Þolinmæði er afleiðing andstreymis. Hún er ekki gefin, hún er þjálfuð.

Ég bað Guð að gefa mér hamingju.
Guð sagði nei.
Ég veiti þér blessun. Hamingjan er undir þér komin.

Ég bað Guð að leyfa mér að sleppa við sársauka.
Guð sagði nei.
Þjáningin fær þig til að hugsa um fleira en daglegt vafstur þessa heims. Hún dregur þig nær mér.

Ég bað Guð að hjálpa mér að vaxa andlega (í trúnni).
Guð sagði nei.
Þú verður að vaxa sjálfur, en ég vil sníða þig til og móta svo þú berir ávöxt.

Ég bað Guð um alla hluti svo ég mætti njóta lífsins.
Guð sagði nei.
Ég vil gefa þér líf svo þú megir njóta allra hluta.

Ég bað Guð að hjálpa mér að elska aðra jafn mikið og hann elskar mig.
Guð sagði JÁ!.........loksins ertu farin(n) að skilja hvað er mikilvægt.

Þú gætir verið öllum heiminum einhver venjuleg manneskja, en einhverri manneskju sem allur heimurinn.
Þú átt daginn í dag, ekki láta hann fara til spillis.
Guð blessi þig!

Höfundur ókunnur