Á hverjum morgni þegar ég les Orð Guðs og á bænastund þá gefur Heilagur Andi mér þær hugmyndir sem ég þarf til að framkvæma það sem Hann hefur gefið mér að gera.
Það var hinsvegar ekki auðvelt fyrir mig að venja mig á að eyða tíma með Guði. Árum saman reyndi ég að aga sjálfa mig til daglegs lestur í Biblíunni og bænar. Í mörg ár, sérstaklega þegar börnin okkar voru lítil, misheppnuðust flestar þessara tilrauna minna. Ég byrjaði e.t.v. á nýrri lestraráætlun, að lesa Biblíuna á einu ári, þrem vikum seinna var ég strax orðin nokkrum köflum á eftir. Bæn var jafnvel erfiðari. Ég barðist við að halda einbeitingu í bæn, oft lyktaði þessu þannig að ég skrifaði innkaupa- og verkefnalista í stað þess að biðja.
Vegna þess að ég var sannfærð um að bæn og Biblíulestur séu nauðsynleg til að lifa heilbrigðu og sterku kristnu lífi hélt ég áfram að reyna. Loks kom að þeim degi að gegnumbrot varð. Mitt í mínum misheppnuðu tilraunum áttaði ég mig á því að Guð hafði sent mér sinn Heilaga Anda til að kenna mér, ráðleggja mér og leiðbeina mér. Ég fór því að ræða við Heilagan Anda um þrá mína til að ganga með Honum og þekkja Hann betur, fyrr en varði átti ég ekki aðeins auðvelt með að eyða klukkustund í bæn heldur var mitt daglega líf fyllt bæn. Ég hugsaði um Guð um leið og ég sinnti mínum daglegu störfum. Oft yfir daginn ræddi ég fjölmargt við Hann. Stundum skynjaði ég hvernig Hann hnippt ljúflega í mig og talaði hljóðlega í anda mínum, sýndi mér viðbrögð og leiðbeindi mér.
Í kjölfarið fór mig að þyrsta eftir Orði Hans. Ég gat ekki beðið eftir því að vakna á morgnanna til að lesa, hvort sem það voru nokkur vers eða nokkrir kaflar. Því meira sem ég las, því meira hugleiddi ég það sem ég hafði lesið og Heilagur Andi talaði til mín og ráðlagði mér.
Ef þú hefur ekki ennþá komist á þennan stað í samfélagi þínu við Heilagan Anda skaltu gera þetta að markmiði þínu. Ekki gefast upp, jafnvel þótt þér mistakist aftur og aftur. Guð nálgast þá sem nálgast hann (Jak 4:8) og þeir sem leita Hans finna Hann (Jer 29:13). Það mun verða gegnumbrot að lokum.
Fyrir þá sem hugsa sem svo að ég einfaldi þetta um of þá játa ég það. En ég hef uppgötvað að sá vísdómur sem er dýrmætastur og hvað mest gefandi er einnig einfaldur. Við verðum bara að framkvæma. Og þar liggur hundurinn grafinn. Of vitum við mæta vel hvað við þurfum að gera; við framkvæmum það einfaldlega ekki. Við förum margbrotnar hjáleiðir sem leiða okkur afvega. Eftir 25 ár sem eiginkona prests hef ég uppgötvað að hamingja kemur af því að heyra rödd Heilags Anda og meðtaka ráðgjöf Hans – og svo framkvæma það sem Hann segir mér að gera.
Ef rödd hans er þér ókunn þá er besta leiðin sú að lesa Biblíuna eins oft og eins mikið og þú getur. Ef þú gerir það muntu læra að þekkja hverskonar hluti Guð segir og læra að þekkja rödd Hans þegar Hann talar til þín. Þegar þú lest Orð Guðs skaltu hugleiða það, biðja yfir því og leyfa Heilögum Anda að kenna þér. Stundum þegar ég les Orð Guðs talar Hann til mín hluti sem tengjast ekkert því sem ég er að lesa. Ég trúi því að þetta gerist vegna þess að ég hlusta markvisst eftir rödd Hans. Stöku sinnum kemur Hann mér á óvart með óvæntri hugmynd eða verkefni sem Hann vill að ég framkvæmi.
Ef þú lærir að þekkja rödd Heilags Anda muntu verða þess umkomin að taka nærveru Guðs með þér í þínu daglega lífi.
Þýtt og staðfært úr Discipleship Journal tölublaði 147,
Ágúst Valgarð Ólafsson júlí 2005
Höfundur: Gayle Haggard
Þessi grein var aðlöguð úr bókinni “A Life Embraced”

