Íslenska Kristskirkjan

Þú ert hérna: Forsíða Fræðsla Orð frá prestinum Gerðu áramótaheit!
Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa

Gerðu áramótaheit!

Sumum finnst barnalegt að gera áramótaheit, þau standist hvort eð er sjaldnast. Gott og vel, þótt þau endist kannski ekki lengi í sumum tilfellum, þá endast þau a.m.k. einhvern tíma, stundum lengi. Ég gerði tvö heit um þessi áramót og er þegar farinn að breyta hlutum hjá mér til að framkvæma í samræmi við þau. Annað er að skrifa hefti eða litla bók um það af hverju fólk í dag hegðar sér, hugsar og framkvæmir eins og það gerir. Af hverju er svona mikil afhelgun (afkristnun) í dag? Ég er þegar kominn vel af stað með skriftirnar. Hitt heitið er að vera “strangari” við sjálfan mig hvað það varðar að nota morgnana mér til uppbyggingar, bænar og íhugunar auk þess að skrifa fyrrneft hefti. Ég var boðaður á fund í morgun, en tilkynnti forföll af fyrrgreindum ástæðum. Ef við nýtum tíma okkar í það sem er köllun Guðs fyrir líf okkar, þá líður okkur vel, við verðum örðum til blessunar og komum meiru í verk. En kannski segir þú, “Já, en áramótin eru liðin, það er of seint fyrir mig að taka mig á og gera nýtt heit (eða endurnýja fyrra heit sem ég var farinn að vanrækja).” Nei, kæri vinur, við skulum hugsa okkur að áramótin séu í dag eða á morgun, svo að þú hefur enn tækifæri! Láttu verða af því að taka þig á, setja þér ný og góð markmið og koma hutum í lag í lífi þínu. Þú munt ekki sjá eftir því. Guð leiði þig og styrki í því góða verki. Gangi þér vel!