Íslenska Kristskirkjan

Þú ert hérna: Forsíða Fræðsla Orð frá prestinum Atriði til að skoða í ársbyrjun
Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa

Atriði til að skoða í ársbyrjun

Í ársbyrjun skoðum við gjarnan stöðu okkar. Það er nauðsynlegt v.þ.a. oft gerist það að fólk byrjar vel á göngunni með Guði og hefur mikinn áhuga bæði að rækta samband sitt við Guð (persónulegur vöxtur), rækja samfélagið í söfnuðinum (taka þátt í starfinu í kirkjunni, bæði taka á móti og gefa af sér). En svo koma upp hlutir sem draga úr áhuganum og þátttökunni. Ástæðurnar geta verið ýmsar. Hér á eftir mun ég nefna nokkrar þeirra og í sviga hvað hægt væri að gera til að leysa málið. Í næstu pistlum mun ég fjalla nánar um þau atriði, en hér koma nokkur þau sem valda vanda:
  • Þreyta vegna álags margs konar. (Minnka álagið og skipul. tíma sinn betur)

  • Viðkomandi finnst hann ekki ná þeim árangri sem hann vænti (Setja sér ný markmið í samræmi við eigin getu og aðstæður svo að væntingarnar verði raunhæfar).

  • Ágreiningur við aðra um starfsaðferðir. (Ræða í einlægni um hlutina. Ekki gera lítið úr öðrum og vinnubrögðum þeirra. Prófa ýmsar leiðir og láta reynsluna sýna hvað er best.)

  • Persónulegir hlutir svo sem: Viðkomandi finnst hann ekki metinn sem skyldi, honum ekki þakkað eða að hann fái ekki viðurkenningu fyrir verk sín. Viðkomandi lendir upp á kant við aðra og á erfitt með að sættast og fyrirgefa. Vonbrigði í ástamálum. Viðkomandi á erfitt með að samlagast öðrum, er feiminn og finnur fyrir vanmetakennd. Viðkomandi vill ráða og að hlutirnir verði gerði eftir hans höfði, sættir sig ekki við málamiðlanir og hættir ef hann fær sitt ekki fram.

  • Leti og óregla hvað það varðar og gera réttu hlutina og rækja þá. Sá sem þannig er ástatt með, verður fljótt óvirkur í söfnuðinum, fer að slaka á í andlegum vexti sínum og byrjar að gagnrýna trúsystkini og söfnuðinn í stað þess að líta í eigin barm og taka sig á.

Mikilvægt er að sá sem upplifir stöðnun eða afturför taki fljótt og vel (markvisst) á þeim hlutum sem draga úr andlegum vexti hans, þáttöku og virkni í söfnuðinum. Ef fólk byrjar að slaka og gerir það áfram án þess að taka sig á, er mikil hætta á að viðkomandi staðni og þá er voðinn vís –fráfall getur verið á næsta leyti. Þess vegna er áríðandi að gera eitthvað í málinu. Meira um það næst.