Íslenska Kristskirkjan

Þú ert hérna: Forsíða Fræðsla Orð frá prestinum Láttu ekkert draga þig niður!
Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa

Láttu ekkert draga þig niður!

Sífellt heyrum við af atburðum, athöfnum og orðum fólks sem okkur líkar ekki. Fíkniefnavandinn eykst. Hinn kaþólski menntamálaráðherra (Þorgerður Katrín) vill orðið “kristilegt” út úr grunnskólalögunum. Þjóðkirkjan er tilbúin til að vígja samkynhneigða í sambúð breyti Alþingi lögum í þá átt. Hin nýja þýðing Biblíunnar er meingölluð (víða endursagt en ekki þýtt orðrétt, merkingu breytt alvarlega, apokrýfuritin fá stað í miðri Biblíunni eins og þau væru viðurkennd kanónísk rit, neðanmálstilvitnanir teknar burt o.fl.). Ráðherrar ganga fram í hroka við stöðuveitingar……
Dæmin eru mýmörg. En mitt í þessu vil ég minna okkur á orð Páls postula: “Verið ávallt glaðir vegna samfélagsins við Drottin!” Höldum ró okkar hvað sem á dynur. Látum ekki dragast með út í argaþras nútímans. Myndum okkur skoðanir út frá Biblíunni og heilbrigðum viðhorfum komnum frá henni. Gætum okkur á tryllingi tíðarandans. Förum vel með tímann. Notum peningana okkar viturlega. Forðumst allt óhóf og eyðslusemi en verum gjafmild. Förum vel með líkama okkar. Varðveitum hjarta okkar hreint af sora heimsins, því að í hjartanu eru uppsprettur lífsins, eins og segir í Guðs orði. Verum sáttfús, fyrirgefandi, gætum orða okkar og framgöngum af hógværð og í Guðsótta. Guð gefi þér góðan dag!