Íslenska Kristskirkjan

Þú ert hérna: Forsíða Fræðsla Orð frá prestinum Ekki, ekki, ekki…
Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa

Ekki, ekki, ekki…

…ekki gera þetta og ekki gera hitt. Hefur þú heyrt þetta áður? Já, eflaust. Við höfum nefnilega tilhneigingu til að gera vitleysur. Mörgu kristnu fólki finnst því takast svo illa að lifa sigrandi trúarlífi, að það er með viðvarandi sektarkennd. Þetta ástand lamar margt kristið fólk og kemur í veg fyrir að það vaxi í trúnni og sé virkt í söfnuðinum. Verum raunsæ. Okkur mun aldrei takast að lifa einn einasta dag hér á jörð án þess að syndga! Ha? segir þú. Já, ég fullyrði það. Hver getur lifað fullkomnu lífi einn einasta dag? Ekki ég. Ekki þú. Það er eins gott að átta sig á þessu sem allra fyrst og venja sig á að lifa í daglegri iðrun og fyrirgefningu. Annars verðum við sveiflukennd: sveiflumst milli sektarkenndar (eftir að okkur hefur orðið eitthvað á og ekki iðrast og meðtekið fyrirgefningu) og sigurgleði (meðan við höfum ekki syndagð á ný).

Þú átt eftir að misstíga þig. Þú átt eftir að syngda. Ekki lifa í þeirri blekkingu að nú sértu orðinn svo helgaður að þú munir tæplega hrasa á ný. Ef þú gerir það mun fall þitt verða enn meira og hafa enn meiri afleiðingar. Vertu raunsær og láttu nýja hrösun ekki koma þér á óvart. En þar með er ekki öll sagan sögð. Vertu líka raunsær og klár á því að ef og þegar þú syndgar, þá átt þú árnaðarmann (talsmann, hjálpara, stuðningsaðila) hjá Guði föður og hann heitir Jesús. Fyrir hans tilstilli átt þú fyrirgefningu vísa ef þú iðrast og biðst fyrirgefningar. En þessi náð má ekki verða plástur sem við notum bara si sona. Nei, biddu Guð um að opna augu þín fyrir alvarleika syndarinnar og hve vond hún er, svo að þú verðir sífellt árvökulli fyrir því að falla sjaldnar og sjaldnar fyrir freistingunum. Þetta er barátta. Barátta holdsins og andans. Lífðu í fyllingu Andans svo að þú vinnir á fleiri sigra og máttur freistingarinnar fari dvínandi. En umfram allt, lærðu að lifa í náðinni. Það er að forðast að lifa með slæma samvisku og sektarkennd, en meðtaka daglega nýja náð og fyrirgefningu frá Guði sem svo verður hvatning til að helgast og hafna syndinni.