Íslenska Kristskirkjan

Þú ert hérna: Forsíða Fræðsla Orð frá prestinum Eftir heimsókn Teske
Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa

Eftir heimsókn Teske

“Hreint frábær!” eru orðin sem koma mér í hug nú þegar ég lít um öxl og rifja upp dagana með erlendu gestunum sem heimsóttu söfnuðinn dagana 1. – 7. apríl, Paul og Rivers Teske og vin þeirra Lars Lindström. Námskeiðið sem stóð tvö kvöld og einn laugardag var mjög gott –góð og lifandi kennsla og mjög góð mæting. Sama er að segja um samkomuna með unglingunum og kvöldsamkoman á sunnud. þegar kirkjan var alveg fullsetin. Mjög margir fengu fyrirbæn fyrir ýmsu sem var að gera þeim lífið leitt, veikindum og hugarangri. Auk þess sagði Paul vitnisburð sinn í guðsþjónustu í Neskirkju kl 11 á sunnud. Gestirnir voru mjög ánægðir með að koma hingað og stefna að því að koma aftur í haust. Við trúum því að þetta sé upphafið að langri og góðri vináttu og samstarfi.

Á næstu vikum verður spennandi að heyra vitnisburði fólks sem hefur fengið bót meina sinna. Einnig munum við hugleiða efnið sem útlendingarnir fjölluðu um: læknigar á sál og líkama. Þetta er svið sem við eigum margt ólært um, en jafnframt mjög mikilvægt vegna þess að allir hafa við eitthvert mein að stríða, hvort sem er andlegt eða líkamlegt. Þetta var góður áfangi á þeirri lærdómsleið.